12mar17:0019:00Viðburður fyrir sanna koníaksunnendurEftir
Þann 12. mars í Reykjavík heldur hið heimsþekkta koníakshús Camus einstakt vínsmakk, og það er sjálfur Cyril Camus, erfingi og fulltrúi fimmtu kynslóðar fjölskyldunnar, sem leiðir kvöldið. Þú færð að: – Smakka
Þann 12. mars í Reykjavík heldur hið heimsþekkta koníakshús Camus einstakt vínsmakk, og það er sjálfur Cyril Camus, erfingi og fulltrúi fimmtu kynslóðar fjölskyldunnar, sem leiðir kvöldið.
Þú færð að:
– Smakka úrval af framúrskarandi Camus-koníaki.
– Heyra sögurnar á bak við húsið og handverkið.
– Njóta skemmtilegrar stemningar í góðum félagsskap.
– Í lok vínsmakk verður boðið uppá Camus Vinningskokteil og snarl.
Þetta er sjaldgæft tækifæri til að upplifa alvöru franska koníaksmenningu, beint frá aðilunum sem standa á bak við hana.
Takmarkað sætaframboð, tryggðu þér miða áður en uppselt verður á tix.is.
Meira
12.03.2026 17:00 - 19:00(GMT+00:00)
Matarmarkaður Íslands heldur vetrarmarkað helgina 14. og 15. mars í Hörpu. Þá koma saman bændur, sjómenn og smáframleiðendur af öllu landinu með fjölbreytt úrval af matarhandverki. Frábært tækifæri til þess
Matarmarkaður Íslands heldur vetrarmarkað helgina 14. og 15. mars í Hörpu. Þá koma saman bændur, sjómenn og smáframleiðendur af öllu landinu með fjölbreytt úrval af matarhandverki. Frábært tækifæri til þess að hitta framleiðendur og fræðast um hvað er að baki vörunni. Vertu velkomin í uppruna, umhyggju og upplifun!
14.03.2026 11:00 - 15.03.2026 17:00(GMT+00:00)
15marAllan daginn16Snædís keppir í forkeppni Bocuse d´OrEftir
Snædís Xyza verður næsti fulltrúi Íslands í Bocuse d’Or Europe sem haldin verður í Marseille dagana 15. til 16. mars 2026. Nánari upplýsingar hér. Fleiri fréttir
Snædís Xyza verður næsti fulltrúi Íslands í Bocuse d’Or Europe sem haldin verður í Marseille dagana 15. til 16. mars 2026.
15.03.2026 - 16.03.2026 (Allan daginn)(GMT+00:00)
19mar09:0012:00Morgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. marsEftir
English below! Innnes býður viðskiptavinum á opið hús fimmtudaginn 19. mars frá kl. 9:00–12:00 í Korngörðum 3, Reykjavík (4. hæð). Að þessu sinni beinum við sjónum að morgunverðinum og kynnum gríðarlega fjölbreytt
English below!
Innnes býður viðskiptavinum á opið hús fimmtudaginn 19. mars frá kl. 9:00–12:00 í Korngörðum 3, Reykjavík (4. hæð).
Að þessu sinni beinum við sjónum að morgunverðinum og kynnum gríðarlega fjölbreytt úrval af vörum og spennandi nýjungum sem henta jafnt hótelum, gistiheimilum, veitingastöðum og stofnunum sem vilja bjóða upp á aðlaðandi og hagkvæmar morgunverðarlausnir.
Við kynnum meðal annars:
Brauð, croissant, vöfflur og sætabrauð í miklu úrvali
Hrærð egg, beikon og bakaðar baunir
Ostar, álegg, sneidd egg og sultur
Jógúrt og morgunkorn
Ferskir ávextir og grænmeti
Kaffi, safar og freyðivín
Gestum gefst tækifæri til að smakka vörur, kynna sér nýjungar og ræða við söluteymi Innnes um lausnir sem henta hverjum rekstri.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur og eiga með ykkur notalega morgunstund í Korngörðum 3.
Innnes invites customers and partners to an open house on Thursday, March 19, from 9:00–12:00 at Korngarðar 3, Reykjavík (4th floor).
This time, the focus is on breakfast. We will showcase a wide and diverse product range along with exciting new items, tailored to hotels, guesthouses, restaurants, and institutions looking to offer attractive and cost-effective breakfast solutions.
Highlights include:
A wide selection of bread, croissants, waffles, and pastries
Scrambled eggs, bacon, and baked beans
Cheeses, cold cuts, sliced eggs, and jams
Yogurt and breakfast cereals
Fresh fruits and vegetables
Coffee, juices, and sparkling wine
Guests will have the opportunity to taste products, explore new launches, and discuss tailored solutions with the Innnes sales team.
We look forward to welcoming you for an inspiring and enjoyable morning at Korngarðar 3.
Meira
19.03.2026 09:00 - 12:00(GMT+00:00)
22marAllan daginn24NorðurlandakeppniEftir
Norðurlandakeppnirnar Nordic Chef, Nordic Chef Jr., Nordic Waiter og Nordic Green Chef verða haldnar dagana 22.–24. mars í Herning í Danmörku. Meðfylgjandi mynd er frá Norðurlanda keppninni árið 2022,
Norðurlandakeppnirnar Nordic Chef, Nordic Chef Jr., Nordic Waiter og Nordic Green Chef verða haldnar dagana 22.–24. mars í Herning í Danmörku.
Meðfylgjandi mynd er frá Norðurlanda keppninni árið 2022, sjá nánar hér.
Mynd: Brynja Kr Thorlacius
22.03.2026 - 24.03.2026 (Allan daginn)(GMT+00:00)
27marAllan daginnGrænmetiskokkur ársins 2026Eftir
Keppnirnar um Grænmetiskokk ársins 2026 og Kokk ársins 2026 fara fram í IKEA dagana 26. til 29. mars næstkomandi. Klúbbur Matreiðslumeistara fer með undirbúning og framkvæmd keppnanna líkt og undanfarin
Keppnirnar um Grænmetiskokk ársins 2026 og Kokk ársins 2026 fara fram í IKEA dagana 26. til 29. mars næstkomandi. Klúbbur Matreiðslumeistara fer með undirbúning og framkvæmd keppnanna líkt og undanfarin ár.
Nánari upplýsingar um dagsetningar á skráningu, grunnhráefni og fleira hér.
Yfirlit frétta um keppnina Grænmetiskokkur ársins hér.
Mynd: Mummi Lú / Andrés Björgvinsson er Gænmetiskokkur ársins 2025.
Meira
27.03.2026 Allan daginn(GMT+00:00)
29marAllan daginnKeppnin Kokkur ársinsEftir
Keppnirnar um Kokk ársins 2026 og Grænmetiskokk ársins 2026 fara fram í IKEA dagana 26. til 29. mars næstkomandi. Klúbbur Matreiðslumeistara fer með undirbúning og framkvæmd keppnanna líkt og undanfarin
Keppnirnar um Kokk ársins 2026 og Grænmetiskokk ársins 2026 fara fram í IKEA dagana 26. til 29. mars næstkomandi. Klúbbur Matreiðslumeistara fer með undirbúning og framkvæmd keppnanna líkt og undanfarin ár.
Nánari upplýsingar um dagsetningar á skráningu, grunnhráefni og fleira hér.
Yfirlit frétta um keppnina Kokkur ársins.
Mynd: Mummi Lú / Gabríel Kristinn Bjarnason er Kokkur ársins 2025.
Meira
29.03.2026 Allan daginn(GMT+00:00)
13aprAllan daginn19Reykjavík Cocktail Week 2026 fer fram 13. til 19. aprílEftir
Stærsta kokteilahátíð Íslands, Reykjavík Cocktail Week fer fram dagana 13. – 19. apríl 2026! Fréttayfirlit hér.
Stærsta kokteilahátíð Íslands, Reykjavík Cocktail Week fer fram dagana 13. – 19. apríl 2026!
13.04.2026 - 19.04.2026 (Allan daginn)(GMT+00:00)
19aprAllan daginn21Norræna nemakeppninEftir
Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu fer fram dagana 19.–21. apríl 2026 í Svíþjóð, þar sem nemendur sýna hæfni sína í matargerð og framreiðslu á hæsta stigi. Fréttayfirlit
Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu fer fram dagana 19.–21. apríl 2026 í Svíþjóð, þar sem nemendur sýna hæfni sína í matargerð og framreiðslu á hæsta stigi.
19.04.2026 - 21.04.2026 (Allan daginn)(GMT+00:00)
28aprAllan daginn29Ferð til Ítalíu í verðlaun í pizzakeppniEftir
Áhugasamir pizzabakarar fá tækifæri til að láta ljós sitt skína síðar í vor þegar pizzakeppni verður haldin dagana 28. og 29. apríl 2026 í tilraunaeldhúsi ÓJK-ÍSAM. Keppnin er haldin í
Áhugasamir pizzabakarar fá tækifæri til að láta ljós sitt skína síðar í vor þegar pizzakeppni verður haldin dagana 28. og 29. apríl 2026 í tilraunaeldhúsi ÓJK-ÍSAM. Keppnin er haldin í samstarfi við ítalska hveitiframleiðandann Polselli og verður keppt um vegleg verðlaun.
Fyrstu verðlaun eru sérlega eftirsóknarverð. Sigurvegarinn fær ferð til Ítalíu þar sem hann sækir námskeið hjá Polselli og fær jafnframt tækifæri til að heimsækja frægustu pizzastaði í Napólí. Auk þess verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í keppninni.
Keppnin byggir á skýrum reglum. Keppendur þurfa að nota Polselli hveiti við pizzugerðina og koma sjálfir með deigið og allt hráefni sem notað er á pizzuna, ásamt uppskrift. Hver keppandi fær 15 til 20 mínútur til að baka pizzuna. Að því loknu smakka dómarar pizzurnar og gefa þeim einkunn.
Áhugasamir geta fengið frekari upplýsingar um skráningu og reglur hjá Eggerti hjá ÓJK-ÍSAM. Hægt er að hafa samband í síma 856-2762 eða með tölvupósti á [email protected].
Meira
28.04.2026 - 29.04.2026 (Allan daginn)(GMT+00:00)
03mai12:0018:00Reykjavík Chilli Festival í Gamla bíóEftir
Ný matarhátíð sem helguð er eldpipar og bragðsterkum mat verður haldin í fyrsta sinn í Reykjavík sunnudaginn 3. maí næstkomandi. Hátíðin ber heitið Reykjavík Chilli Festival og fer fram í
Ný matarhátíð sem helguð er eldpipar og bragðsterkum mat verður haldin í fyrsta sinn í Reykjavík sunnudaginn 3. maí næstkomandi. Hátíðin ber heitið Reykjavík Chilli Festival og fer fram í Gamla bíó milli klukkan 12:00 og 18:00.
03.05.2026 12:00 - 18:00(GMT+00:00)
16maiAllan daginn19Hinrik Örn Lárusson keppir fyrir Íslands hönd í WalesEftir
16.05.2026 - 19.05.2026 (Allan daginn)(GMT+00:00)
16maiAllan daginn19Worldchefs með ráðstefnu, sýningu og keppni í Wales árið 2026Eftir
Worldchefs, áhrifamestu samtök matreiðslumanna í heiminum, verða með ráðstefnu, sýningu og keppni sem fram fer dagana 16.–19. maí 2026 í Newport í Wales. Þema ráðstefnunnar að þessu sinni er „Pasture, Passion,
Worldchefs, áhrifamestu samtök matreiðslumanna í heiminum, verða með ráðstefnu, sýningu og keppni sem fram fer dagana 16.–19. maí 2026 í Newport í Wales.
Þema ráðstefnunnar að þessu sinni er „Pasture, Passion, Plate“, sem heiðrar ferðalag matarins frá uppruna til fullbúins réttar og undirstrikar hvernig matur tengir okkur öll – frá bónda til borðs, yfir landamæri og menningarheima.
Um 1.000 kokkar frá 110 löndum sækja ráðstefnuna, ásamt 30 alþjóðlegum fyrirlesurum og sérfræðingum úr atvinnulífinu. Þá verður jafnframt sýning 200 nýsköpunarfyrirtækja og sýnenda, og búist er við að viðburðurinn laði að um 6.000 þátttakendur víðs vegar að úr heiminum.
Global Chef keppnin fer fram samhliða ráðstefnunni, en þar mun Hinrik Örn Lárusson keppir fyrir Íslands hönd í Wales.
Heimasíða: www.worldchefscongress.org
Kynningarmyndband
Meira
16.05.2026 - 19.05.2026 (Allan daginn)(GMT+00:00)
Atvinnu-, og sölusíða veitingabransans
Starfsfólk í veitingabransanum
Veitingageirinn (Lokuð grúppa, aðeins fyrir fagmenn í veitingabransanum)
Ertu ekki að fá inngöngu en uppfyllir öll skilyrði? Sendu þá á okkur línu til staðfestingar.

