Vín, drykkir og keppni
Dwayne Johnson setur aukinn kraft í útrás Teremana
Tequila-vörumerkið Teremana, sem er í eigu leikarans Dwayne Johnson, hyggst auka verulega við alþjóðlega útbreiðslu sína á næstu misserum. Áætlanir gera ráð fyrir innkomu á yfir tuttugu nýja markaði í Evrópu, Afríku og Asíu á næstu tólf mánuðum.
Útrásin er unnin í samstarfi við dreifingarfyrirtækið Mast-Jägermeister og nær meðal annars til landa á borð við Brasilíu, Spán, Frakkland, Suður-Afríku, Japan og Indónesíu. Þetta er framhald af fyrri stækkun vörumerkisins sem þegar hefur haslað sér völl í Evrópu, Ástralíu og Mið-Austurlöndum, auk markaða eins og Bretlands, Þýskalands og Sameinuðu arabísku furstadæmanna.
Dwayne segir markmiðið frá upphafi hafa verið stærra en hefðbundin tequila-framleiðsla. Áherslan hafi legið á að miðla ákveðinni hugmyndafræði, þar sem jákvæð orka, þakklæti og tengsl fólks skipa lykilhlutverk. Með frekari útbreiðslu fái fleiri tækifæri til að kynnast handverkinu og þeim gildum sem liggja að baki hverri flösku.
Teremana var sett á markað árið 2020 og hefur vöxtur verið hraður. Árið 2023 seldist vörumerkið í yfir einni milljón kassa á ári, sem náðist innan þriggja ára frá stofnun. Þar með fór Teremana fram úr tequila-vörumerkinu Casamigos í sölumagni, en það er tengt leikaranum George Clooney.
Drykkurinn er framleiddur í eigin eimingarhúsi í Jalisco í Mexíkó og er fáanlegur í þremur útgáfum, blanco, reposado og añejo. Að baki verkefninu standa Dwayne ásamt samstarfsaðilum, þar á meðal Lopez-fjölskyldunni sem sér um framleiðsluna.
Hjá Mast-Jägermeister segir forstjórinn Michael Volke að stækkunin endurspegli bæði gæði vörunnar og styrk samstarfsins, að því er fram kemur í tilkynningu. Fyrirtækið hafi það hlutverk að koma Teremana á framfæri við nýja neytendur víða um heim og byggja áfram á þeim grunni sem þegar hefur verið lagður.
Richard Black, forstjóri Teremana segir meðal annars í tilkynningu að hann tekur í svipaðan streng og segir að vöxturinn hafi frá upphafi verið markviss, án þess að gefa eftir í gæðum eða handverki. Viðtökurnar á nýjum mörkuðum sýni að eftirspurn eftir hágæða tequila sé að aukast, og með frekari útbreiðslu skapist tækifæri til að ná til nýrra markhópa.
Myndir: teremana.com
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni4 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt5 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði






