Viðtöl, örfréttir & frumraun
Ísak kokkur galdraði fram hátíðarmat fyrir áhöfn Björgúlfs EA 312
Páskadagurinn var haldinn hátíðlegur um borð í Björgúlfi EA 312 með glæsilegum hátíðarmat, þar sem kokkurinn Ísak Oddgeirsson lagði metnað í að skapa páskalega stemningu þrátt fyrir að skipið væri staðsett á vertíðarslóðum suðvestur af Reykjanesi.
Sjómenn eru oft fjarri sínum nánustu yfir hátíðir og því skiptir miklu máli að gera vel við sig þegar tilefni gefst. Ísak segir að undirbúningurinn hafi heppnast afar vel og að stemningin um borð hafi verið í takt við daginn.
„Þetta tókst ljómandi, strákarnir fengu andarbringur með hasselback og balsamic-gljáa og í eftirrétt var skyrfrauð með hvítu súkkulaði og bláberjum.
Þeir áttu svo sannarlega skilið að fá hátíðarmat á þessum degi, strákarnir. Og svo fengu allir páskaegg, þannig að hér ríkir hátíðarstemning,“
segir Ísak.
Samkvæmt honum var ekki aðeins vel gert við bragðlaukana heldur var einnig haldið í hefðirnar, en flaggað var um borð í tilefni dagsins eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Þrátt fyrir að vera langt frá landi tókst áhöfninni þannig að skapa hlýlega og hátíðlega stemningu á miðunum, þar sem góður matur og samvera skiptu sköpum.
Myndir: Facebook / Samherji
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn6 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Frétt5 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn1 dagur síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanÍslandshótel opna nýja veitingastaði á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju










