Uppskriftir
Einföld og klassísk kartöflusúpa
Uppskrift úr hefti Húsmæðraskólans Ósk á Ísafirði.
Á Ísafirði var rekinn húsmæðraskóli frá árinu 1912 og óslitið til ársins 1989. Frumkvöðull og stofnandi skólans var Camilla Torfason með dyggum stuðningi Kvenfélagsins Óskar. Húsmæðraskólinn Ósk sameinaðist síðar Iðnskólanum og Menntaskólanum á Ísafirði í Framhaldsskóla Vestfjarða.
Hráefni
2 laukar eða 2 blaðlaukar
700 g kartöflur
35 g hveiti
2 l vatn eða kjötsoð
25 g smjörlíki
Salt
Pipar
1½ msk söxuð steinselja
Aðferð
Sneiðið laukinn. Afhýðið kartöflurnar hráar.
Sjóðið lauk og kartöflur í 5 mínútur. Jafnið súpuna og látið hana síðan sjóða í um 10 mínútur.
Bætið smjörlíkinu út í og kryddið með salti og pipar. Stráið söxuðu steinselju í súpuskálina við framreiðslu.
-
Keppni5 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Markaðurinn6 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Markaðurinn5 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt4 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn7 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni2 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni8 klukkustundir síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum




