Markaðurinn
Mötuneyti skera sig úr með hæstu dagvinnulaunin
Meðalheildarlaun félagsfólks í helstu starfsgreinum innan MATVÍS voru á bilinu 816 til 978 þúsund krónur síðastliðið haust. Þetta eru niðurstöður kjarakönnunar félagsins sem lögð var fyrir í september 2025.
Í tilkynningu frá MATVÍS kemur fram að félagið fær reglulega fyrirspurnir um laun og gefur þessi samantekt góða mynd af stöðunni eins og hún var þegar könnunin var lögð fyrir.
Hæst voru meðallaunin hjá bökurum, þar sem heildarlaun námu að jafnaði 978 þúsund krónum. Næst á eftir komu starfsmenn í mötuneytum með 918 þúsund krónur og í veitingahúsum með 867 þúsund krónur. Þá voru meðallaun í hótelum og gististöðum 823 þúsund krónur og í kjötvinnslu 816 þúsund krónur að jafnaði.
Dagvinnulaun voru hæst í mötuneytum, 4.940 krónur á tímann, en lægst í veitingahúsum, 3.781 króna. Yfirvinna vegur víða þungt í heildarlaunum, til dæmis í veitingahúsum þar sem yfirvinnulaun námu að jafnaði 288 þúsund krónum.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn4 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn4 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn5 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni3 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði




