Frétt
Svangur þjófur braust inn í Almars bakarí í Hveragerði
Óvenjulegt innbrot átti sér stað í Almars bakarí fyrrinótt þegar ungur þjófur hafði á brott með sér vörur úr hillum bakarísins.
Samkvæmt frétt Sunnlenska hafði þjófurinn áður brotist inn í Shellskálann í Hveragerði áður en hann hélt áfram för sinni og braust inn í bakaríið.
Þar lét hann greipar sópa og hafði á brott með sér marsipanstykki, franska vöfflu, kókoskúlu og orkudrykkinn Red Bull.
Þegar starfsfólk mætti til vinnu um nóttina varð fljótt ljóst að brotist hafði verið inn og var lögregla kölluð til. Rannsókn hófst þegar í stað og hefur nú tekist að handsama manninn sem grunaður er um verknaðinn.
Í samtali við Sunnlenska segir Lóa Ingibergsdóttir að atvikið hafi komið á óvart:
„Þetta er í fyrsta sinn sem við lendum í því að það sé brotist inn til okkar, á 17. afmælisárinu okkar. Annars erum við bara góð. Við erum mjög ánægð með að ekki varð meiri skaði og hann skemmdi ekki meira en þessa rúðu.“
Myndir: skjáskot úr myndbandi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn5 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn5 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn5 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Markaðurinn4 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn7 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar7 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð




