Nemendur & nemakeppni
Metfjöldi í sveinsprófi bakara í tæpan aldarfjórðung – Árni bakari: „Ég hef kynnt aðferð sem ég lærði í Danmörku….“ – Myndaveisla
Nú á dögunum fór fram sveinspróf í bakstri í Hótel-, og matvælaskólanum. Miklir fagmenn á ferð sem töfruðu fram ljúffengar og glæsilegar kræsingar.
Að þessu sinni útskrifuðust 13 bakarar með sveinspróf í bakaraiðn. Ekki hafa fleiri þreytt sveinspróf síðan árið 2000. Bakaraiðn hefur lengi verið karlæg og þess vegna er gaman að segja frá því að 6 stúlkur útskrifuðust að þessu sinni.
Birgir Fannar Sigurðarson – Almar bakari
Darri Dór Orrason – Reynir bakari
Finnur Guðberg Ívarsson Prigge – Kökulist og Bláa lónið
Guðbjörg Ósk Andreasen Gunnarsdóttir – Brikk
Gunnar Jökull Hjaltason – Mosfellsbakarí
Hekla Guðrún Þrastardóttir – Hygge
Karen Guðmundsdóttir – Gulli Arnar
Lovísa Þórey Björgvinsdóttir – Bæjarbakarí
Matthildur Ósk Guðbjörnsdóttir – Gulli Arnar
Mikael Sævarsson – Kalla bakarí Akranesi
Óli Steinn Steinþórsson – Gæðabakstur
Pálmi Hrafn Gunnarsson – Ikea
Sunneva Kristjánsdóttir – Sandholt
„Á undanförnum árum hefur atvinnulífið einnig tekið fleiri nema til sín, sem er mikilvæg þróun.
Ég hef kynnt aðferð sem ég lærði í Danmörku, þar sem fleiri nemar eru teknir á hverja stöðu og þeim gefnir færri tímar. Með tilkomu nýrrar ferilbókar hefur ábyrgðin verið færð yfir á meistarana til að meta hvort nemarnir séu tilbúnir til að ljúka námi sínu, óháð tíma.
Sagði Haraldur Árni Þorvarðarson betur þekktur sem Árni bakari, aðpurður um hvað veldur aukningu á fjölda útskrift bakara, en Árni er fagstjóri bakaradeildar í Hótel- og matvælaskólanum.
„Dæmi um þessa aðferð sá ég á Jótlandi fyrir þremur árum, þar sem lítið kondítorí var með fjögur nemapláss en sex nema við þau. Þetta fyrirkomulag leiddi til þess að engin yfirvinna var hjá meistaranum, hvort sem nemarnir voru í skóla eða í fríi.
Nemarnir fá mikinn stuðning hver frá öðrum, hvort sem það er á vinnustaðnum eða í skólanum, sem ýtir undir að allir standi sig vel og forðast að fólk brenni út og hætti.
Við erum bjartsýn á framtíðina í bakaraiðninni og hlökkum til að sjá fleiri nemendur nýta sér þau fjölbreyttu tækifæri sem greinin býður upp á.“
Sagði Árni að lokum.
Við óskum nýsveinum í bakstri til hamingju með áfangann.
Myndir: aðsendar / Haraldur Árni Þorvarðarson
-
Markaðurinn6 dagar síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
-
Markaðurinn5 dagar síðanFersk íslensk bláskel í allt sumar
-
Frétt4 dagar síðanLaunahækkanir skila sér í næstu útborgun
-
Keppni4 dagar síðanFyrsta pítsakeppni á Íslandi haldin með þátttöku fremstu pítsubakara landsins
-
Markaðurinn5 dagar síðanYfirkokkur/Verkstjóri óskast
-
Markaðurinn4 dagar síðanNóg um að vera hjá ÓJ&K-ÍSAM í Korputorginu
-
Markaðurinn3 dagar síðanMatreiðslumaður óskast á Hótel Reykjavík Sögu í hjarta borgarinnar
-
Frétt5 dagar síðanEnoki sveppir innkallaðir vegna listeríu






































