Viðtöl, örfréttir & frumraun
Kokteilagerðin færir kokteilalistina heim til fólks
Ný þjónusta á sviði kokteilagerðar hefur hafið göngu sína hér á landi undir nafninu Kokteilagerðin, þar sem áhersla er lögð á að færa faglega og skemmtilega kokteilaupplifun beint heim til viðskiptavina.
Að baki verkefninu stendur Sara Rós, barþjónn með reynslu frá Sushi Social og Djúsí Sushi í Smáralind. Hún hefur á undanförnum misserum vakið athygli fyrir árangur sinn í kokteilakeppnum, meðal annars með öðru sæti í Tipsy x Martini og sigri í Whitley Neill keppninni sem fram fór í mars.

Sara Rós tryggði sér sigur í Whitley Neill kokteilakeppninni með framúrskarandi frammistöðu.
Mynd: Innnes
„Mig langaði að ögra sjálfri mér meira og setja mig í „the hot seat“,“
segir Sara Rós um upphafið í samtali við veitingageirinn.is.
„Frekar að byrja og mistakast heldur en að sjá eftir að hafa ekki reynt.“
Kokteilagerðin býður upp á bæði kokteilakennslu í heimahúsum og veisluþjónustu. Sérstaða verkefnisins felst meðal annars í því að hver þátttakandi fær sín eigin áhöld og persónulega leiðsögn, sem gerir upplifunina bæði lifandi og aðgengilega.
„Við sjáum um að koma með öll áhöld og hráefni svo fólk geti einbeitt sér að því að hafa gaman og notið sín,“
útskýrir hún.
„Allir fá sín eigin áhöld að láni og upplifa kennsluna á persónulegan og skemmtilegan hátt.“
Hugmyndin kviknaði að hluta til vegna eftirspurnar úr nærumhverfi hennar, þar sem vinir og fjölskylda sýndu þjónustunni mikinn áhuga. Um leið sá hún tækifæri til að bjóða upp á nýja nálgun sem lítið hefur verið í boði hérlendis.
„Ég hef ekki tekið eftir að einhver sé að bjóða upp á kokteilakennslu í heimahúsum þar sem hver og einn gestur fær sín eigin áhöld,“
segir Sara Rós.
Þjónustan er ætluð fjölbreyttum hópum, hvort sem um er að ræða vinahittinga, gæsanir, afmæli eða viðburði fyrirtækja. Markmiðið er að skapa stemningu þar sem fræðsla og skemmtun fara saman.
Að mati Söru Rósar liggur galdurinn í einfaldleikanum þegar kemur að góðum kokteilum. „Góður kokteill er spennandi en ekki of flókinn. Það er ákveðin lína þar sem jafnvægi næst á milli frumleika og einfaldleika,“
segir hún.
Fram undan er áframhaldandi uppbygging verkefnisins, þar sem hún vonast til að geta stækkað teymið og mætt aukinni eftirspurn á næstu misserum.
„Ég vona að Kokteilagerðin þróist og verði stærri. Start-up tekur tíma en markmiðið er að byggja þetta upp og bæta við fleiri traustum barþjónum.“
Segir Sara að lokum.
Nánari upplýsingar um Kokteilagerðina má finna á kokteilagerdin.is auk þess sem verkefnið er virkt á samfélagsmiðlum undir sama nafni.
Myndir: úr einkasafni
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði






