Viðtöl, örfréttir & frumraun
Eyjafjarðarsveit semur við Snæbjörn matreiðslumeistara til 2029

Finnur Yngvi sveitarstjóri og Snæbjörn H. Kristjánsson matreiðslumeistari takast í hendur við undirritun nýs þjónustusamnings um mötuneyti Hrafnagilsskóla.
Eyjafjarðarsveit hefur gert nýjan þjónustusamning um rekstur mötuneytis Hrafnagilsskóla við matreiðslumeistarann Snæbjörn H. Kristjánsson, að loknu opnu útboðsferli. Snæbjörn hefur sinnt þjónustunni undanfarin ár og byggt upp gott orðspor, að því er fram kemur í tilkynningu sveitarfélagsins. Nýr samningur gildir fyrir tímabilið 2026 til 2029 með möguleika á framlengingu.
Í tilkynningu Eyjafjarðarsveitar segir að við gerð samningsins hafi verið lögð enn ríkari áhersla á gæði og uppruna hráefnis. Sérstaklega sé horft til aukinnar notkunar íslenskra matvæla, skýrari upprunamerkinga og aukins gagnsæis gagnvart notendum þjónustunnar. Þá er jafnframt lögð áhersla á að draga úr notkun gjörunninna matvæla.
Samkvæmt tilkynningunni er markmið samningsins að tryggja nemendum aðgang að fjölbreyttri, hollri og næringarríkri fæðu sem samræmist manneldismarkmiðum Embættis landlæknis. Einnig er lögð áhersla á að styðja við íslenska framleiðslu og minnka kolefnisspor með því að sækja hráefni sem næst heimabyggð.
„Eyjafjarðarsveit er stolt af því að geta, með nýjum samningi, haldið áfram markvissri vinnu við að efla matarmenningu í skólum sveitarfélagsins og skapa nemendum góðar forsendur fyrir heilsu og vellíðan,“
segir jafnframt í tilkynningunni.
Mynd: esveit.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn2 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Markaðurinn7 dagar síðanStökkar franskar sem þú getur treyst á
-
Frétt6 dagar síðanBeint frá býli dagurinn haldinn um land allt
-
Frétt5 dagar síðanVöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver
-
Frétt6 dagar síðanHalla Sif meðal 100 kvenhetja landbúnaðarins
-
Keppni19 klukkustundir síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Markaðurinn3 dagar síðanNýtt frá Lavazza | Qualità Oro Dark Roast


