Markaðurinn
Kósýkvöldið reddað: Stökkar kjúklinga tortillur með buffalo sósu
Þessar stökku kjúklinga tortillur, öðru nafni kjúklinga taquitos, eru afskaplega einfaldur og fjótlegur huggulegheitamatur sem smellpassar yfir sjónvarpinu á kósýkvöldi. Ég nota tilbúinn eldaðan kjúkling til að flýta fyrir og eftirleikurinn er leikur einn. Það er mjög gott að bera fram kalda sósu eða sýrðan rjóma til hliðar.
Stökkar kjúklinga tortillur með buffalo sósu og rjómaosti
(Fyrir 4 sem aðalréttur)
350 g eldaður kjúklingur
200 g rjómaostur til matargerðar frá Gott í matinn
100 g rifinn ostur
3-4 msk. sterk buffalo sósa
4 vorlaukar
8 meðalstórar tortilla kökur (eða 12-16 litlar)
1 msk. olía
Salt og pipar
Límóna, kóríander
Sýrður rjómi, gráðosta-, hvítlauks- eða önnur köld sósa eftir smekk
Aðferð:
Hitið ofn í 180 gráður með blæstri.
Rífið kjúklinginn niður eða skerið smátt.
Skerið vorlaukinn smátt.
Blandið kjúklingi, rjómaosti, rifnum osti, buffalo sósu og vorlauk saman í skál og smakkið til með salti og pipar.
Skiptið blöndunni jafnt á tortilla kökurnar og rúllið upp.
Leggið vefjurnar á bökunarplötu, penslið með smá olíu og bakið í 15-20 mínútur eða þar til gullinbrúnar og stökkar.
Berið fram heitar með kaldri sósu að eigin vali, límónubátum og auka buffalo sósu.
-
Keppni3 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni3 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt4 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Markaðurinn3 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Markaðurinn4 dagar síðanSecret Garden vörulínan stækkar hjá Drykkur heildsölu





