Markaðurinn
Klassískt lasanja fær nýtt bragð með kotasælu
Lasanja er klassískur réttur sem allir elska, hér er ég að notast við nýja útgáfu af kotasælu sem er bragðbætt með hvítlauk og svörtum pipar. Nýja kotasælan setur algjörlega punktinn yfir i-ið í þessum rétti.
En með því að nota kotasælu í þennan rétt er hann mun próteinríkari en með hvítu sósunni sem sumir nota á milli laga. Ég er einnig að nota kotasæluna með chili og sriracha sem ídýfu með grænmeti sem meðlæti. Einstaklega sniðugt að mauka kotasæluna og bera fram sem sósu með grænmeti. Einnig er hægt að nota hana inn í vefjur og í aðra rétti.
Innihald:
- 500 g nautahakk
- 2 dósir kotasæla með hvítlauk og pipar
- 4 – 500 g pastasósa
- 150 g rifinn ostur
- 9 stk lasanja plötur (fer eftir stærð á fati)
- 1 laukur 150 g
- 1 matskeið olía
- 1 stk kjötkrafts tengingur
- 250 ml vatn
- salt, pipar, hvítlaukskrydd, chilli krydd, oregano, timían um 1 tsk af hverju kryddi.
- fersk basilíka (má sleppa)
- Meðlæti: 1 dós kotasæla með chili sriracha og paprikur.
Byrjið á því að skera lauk smátt og steikja upp úr olíunni, bætið hakkinu á pönnuna og steikið það og kryddið. Þegar hakkið er gegnumsteikt er pastasósunni bætt út á pönnuna. Leysið kjötteninginn upp í 250 ml af heitu vatni og bætið út á pönnuna. Bætið fersku basilíkunni út á pönnuna. Maukið kotasæluna með töfrasprota eða í matvinnsluvél.
Smá hluti af kjötsósunni er settur í botninn á eldföstu móti, partur af kotasælunni þar yfir og svo lasanjaplötur þar ofan á, endurtakið þar til kjötsósan klárast. Setjið að lokum rifna ostinn efst. Rétturinn er hitaður við 190 gráður í 30 – 35 mínútur.
Það má einnig blanda kotasælunni út í kjötsósuna ef einhverjum finnst það þægilegra.
Það er sniðugt að máta pastaplöturnar í eldfasta mótið fyrst. Misjafnt er hvort fólk vill nota 2 eða 3 lög af plötum.
Næring í 100 g
Kolvetni: 10,3 g
Prótein: 12,5 g
Fita: 7,2 g
Trefjar: 0,5 g
Höfundur: Helga Magga
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun23 klukkustundir síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Markaðurinn2 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Keppni1 dagur síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn2 dagar síðanRummo-pasta komið á matseðil skóla í Hafnarfirði
-
Markaðurinn19 klukkustundir síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Markaðurinn3 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum




