Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Hótel Blönduós opnar eftir gagngerar endurbætur
Nýtt og endurbætt Hótel Blönduós opnaði formlega nú á dögunum. Húsnæði hótelsins og umhverfi þess er einstakt fyrir margar sakir. Hótelið stendur í miðjum gamla bænum og er húsið upprunalegt að hluta frá árinu 1900 og var þá bústaður sýslumanns Húnvetninga.
Félagarnir Reynir Grétarsson og Bjarni Gaukur Sigurðsson, keyptu húsið af Byggðastofnun. Fljótlega eftir það hófst undirbúningur að breytingum. Eigendur kappkostuðu því að halda í upprunalegt útlit hússins. Hótelið býður upp á alls 19 herbergi; einstaklingsherbergi, tveggja manna herbergi og fjölskylduherbergi.
Eftirfarandi myndir tók Snorri Björnsson:
Útsýnið er breytilegt eftir herbergjum, ýmist yfir gamla bæinn eða Húnaflóann, að því er fram kemur í tilkynningu hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.
Sýslumaðurinn er veitingastaður hótelsins en þar er boðið upp á morgunverðarhlaðborð daglega og kvöldverð á kvöldin. Þar má líka finna huggulegan bar með fallegu sjávarútsýni.
Mikil vöntun hefur verið á gistirýmum á Norðurlandi vestra er því fagnaðarefni að fá nýtt og endurbætt hótel á svæðið.
Stöð 2 fjallaði meðal annars um endurbæturnar sem sjá má í innslaginu hér að neðan:
Heimasíðu Hótel Blönduós og frekari upplýsingar má finna hér.
Myndir: facebook / Hótel Blönduós / Róbert Daníel Jónsson / Snorri Björnsson
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Keppni3 dagar síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Markaðurinn3 dagar síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Frétt3 dagar síðanEiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu
-
Frétt5 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020
-
Markaðurinn2 dagar síðanLaus störf í eldhúsi á fjögurra stjörnu hóteli við Öræfajökul













