Keppni
Fyrsta keppnisdegi Global Chefs Challenge lokið á Ítalíu
Í dag hófst undankeppni Evrópu fyrir Global Chefs Challenge sem haldin verður í kringum heimsþing matreiðslumanna sem fram fer í Wales 2026. Í þessari keppni eru þrír aðilar sem vinna sér inn rétt á að keppa í Wales, einn frá norður Evrópu, einn frá mið Evrópu og einn frá suður Evrópu.
Bjarki í þriðja sæti
Bjarki Snær Þorsteinsson, Turninn, 19. hæð og María Ósk Steinsdóttir, Lux veitingar riðu á vaðið í morgun og hófu keppni klukkan 07.45. Þau voru fyrst til að byrja af öllum keppendum en svo byrjuðu keppendur á fimm mínútna millibili.
Alls voru 12 keppendur sem tóku þátt í Vegan keppninni en þetta var í annað skiptið sem hún var haldin. Í flokki, norður Evrópu, vann Daninn Bjarke Jeppesen, Valerija Cudova frá Lettland í öðru sætti og Bjarki Snær Þorsteinsson íslandi í þriðja.
Jafet náði í brons
Jafet Bergman Viðarsson, Torfhús Retreat, keppti í Global Junior Chef Challenge en keppnin er fyrir ungkokka að hámarki 25 ára á keppnisdegi.
Jafet hóf leik kl. 12.55 þar sem hann hafði 15 mínútur til að stilla sér upp en eldamennska hófst kl. 13.10 og skilaði hann rétt sínum 1. klukkustund síðar.
Jafet endaði í þriðja sæti, Svíinn Benjamin Hellström lenti í öðru sæti og Trym Karlsen frá Noregi sigraði og verður fulltrúi norður Evrópu í Wales á næsta ári.
Hinrik keppir á morgun mánudag
Keppnin heldur áfram á morgun mánudag og þriðjudag þar sem keppt verður í Global Pastry Chef Challenge og Global Chef Challenge, Hinrik Örn Lárusson, Lux veitingar keppir í Global Chef klukkan 08.10 Mice en Place og fyrstu skil kl. 09:45 og lokaskil klukkan 10:25.
Verðlaunaafhending fyrir Global Chef fer fram á þriðjudag kl. 16.00.
Mynd: aðsend
-
Keppni3 dagar síðanMyndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanVerðlaunavín Gyllta Glasið 2026 – Fyrri partur
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanLokar dyrunum eftir krefjandi rekstur
-
Markaðurinn3 dagar síðanVittorio Agosti frá Fabbri heimsótti Ísland með bragðmiklar nýjungar í samstarfi við ÓJ&K-ÍSAM – Myndir og vídeó
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanLatínó-stemning tekur yfir Kolaportið um helgina
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMichel Chapoutier heimsækir Ísland og heldur vínkvöld á Eiríksson Brasserie
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel22 klukkustundir síðanReynir Grétarsson opnar Dinner á LYST á Akureyri – „Við viljum hækka standardinn aðeins í mat og þjónustu.“
-
Markaðurinn4 klukkustundir síðanSumarið er tíminn fyrir ís – Myndir og myndbönd frá ísnámskeiði Fabbri og ÓJ&K – ÍSAM








