Veitingarýni
Dýrindis jólahlaðborð á veitingastaðnum Sunnu á Sigló – Veitingarýni
Veitingastaðurinn Sunna á Hótel Sigló býður upp á glæsilegt jólahlaðborð í aðdraganda jóla nú sem endranær. Jólahlaðborðið sem hófst 15. nóvember s.l. verður alla föstudaga og laugardaga til 14. desember.
Mjög jólalegt var á staðnum sem var smekklega skreyttur. Tekið var vel á móti okkur með brosi og þægilegu viðmóti.
Hitti gamlan starfsfélaga, franska kokkinn Emmanuel Bodinaud sem ég starfaði með á Hótel Loftleiðum fyrir 100 árum. Emmanuel starfar nú á veitingastaðnum Sunnu á Sigló. Virkilega gaman að hitta hann og rifja upp gamla daga.
Gott úrval af forréttum, reykta og grafna gæsin alveg einstaklega góð og hreindýrapaté var mjög gott og villibragðið kom vel í gegn. Með þessu var borin fram klassísk Cumberland sósa og koníaks og rúsínusósa sem passaði einstaklega vel með. Rúgbrauð, laufabrauð og heimabakað brauð.
Hrátt tvíreykt hangilæri var á boðstólnum sem matreiðslumeistari staðarins skar niður fyrir fram gesti. Þvílíkt sælgæti.
Grafinn lax klikkar ekki ef uppskriftin og aðferðin er rétt og reykti laxinn góður og það var allt upp á tíu hér, mjög gott.
6 tegundir af síld og síldaréttirnir hver öðrum betri með sænsku ívafi, appelsínu og stjörnuanís síld, sólberjasíld, hvítlaukssíld og að sjálfsögðu jólasíldin.
Kalt tvíreykt soðið hangikjöt og hamborgarhryggur, og á steikarhlaðborðinu var purusteikin með vel stökkri puru, kalkúnabringa og dúnmjúkt lambalæri og kokkarnir á Sunnu eru greinilega vel að sér í steikingu en þetta var ein besta lambasteik sem ég hef smakkað, algjört sælgæti. Alls kyns meðlæti var í boði með aðalréttunum.
Svo kom punkturinn yfir i-ið, EFTIRRÉTTIRNIR, girnilegir og mjög góðir, hvít súkkulaðimús með ristuðum kókosflögum, hindberjamús, konfekt, frönsk súkkulaðikaka að sjálfsögðu. Pavlova með berjablöndu, góð samsetning, létt og góð.
Á Crème Brûlée vantaði smá herslumun af stökku og karamellíseruðu skorpunni ofan á en annars virkilega gott.
Þjónustan var afskaplega góð og mikill metnaður lagður í allt sem borið var á borð.
Það eina sem ég get sett út á, ef þannig má orða, er að það mætti hugsa meira um að hreinsa leirtauið á borðinu á milli forrétta, aðalrétta og eftirrétta.
Yfir heildina var þetta virkilega gott og greinilega mikill metnaður lagður í jólahlaðborðið og þjónustu, en Sunna á Sigló fær klárlega okkar meðmæli, frábær staður.
-
Keppni7 dagar síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanSilli kokkur heldur norður með smassborgara og villibráð
-
Markaðurinn6 dagar síðanÍslandshótel leita að hótelstjóra fyrir Hótel Reykjavík Askja
-
Markaðurinn4 dagar síðanSveppapizza með burrata sem setur nýjan svip á pizzakvöldið
-
Markaðurinn6 dagar síðanLaus störf í eldhúsi á fjögurra stjörnu hóteli við Öræfajökul
-
Markaðurinn5 dagar síðanÞjónn óskast á Fosshótel Reykholt í Borgarfirði
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanPáfinn skálar fyrir fyrstu vínflöskunum úr eigin víngarði
-
Markaðurinn3 dagar síðanVandaðar skreytingar geta skipt sköpum















