Viðtöl, örfréttir & frumraun
Myndir frá opnunarhátíð MATEY
Í gær, miðvikudaginn 4. september, var haldin opnunarhátíð MATEY Seafood Festival í Sagnheimum, Safnahúsinu í Vestmannaeyjum. Viðburðurinn markaði upphaf hátíðarinnar sem fagnar íslenskum sjávarfangi og framúrskarandi matreiðslu. Í ár eru gestakokkar allar konur, leiðtogar í matreiðslu og koma víða að úr heiminum.
Á opnunarhátíðinni spilaði tónlistarfólk úr Eyjum létta tóna og boðið var upp á kynningar og smakk á fjölbreyttum matvælum frá VSV og Ísfélaginu . Gestir fengu einnig tækifæri til að smakka nýjan bjór frá Brothers Brewery auk veitinga frá Ölgerðinni.
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, opnaði hátíðina formlega. Frosti Gíslason hélt erindi um sjávarsamfélagið í Vestmannaeyjum og Gísli Matthías Auðunsson kynnti hugmyndafræði matarhátíðarinnar, ásamt því að kynna sigurvegara í matreiðslukeppni Íslandsstofu / Seafood from Iceland.
Sjá einnig: Svona líta matseðlarnir út á sjávarréttahátíðinni Matey – Myndir og vídeó
Gestakokkar hátíðarinnar voru einnig kynntir. Adriana Solis Cavita frá Mexíkó mun elda á veitingastaðnum GOTT, Rosie May Maguire frá Bretlandi verður á Slippnum og Renata Zalles frá Bólivíu mun vera gestakokkur á Einsa Kalda. Ásamt þessu var einnig opnuð listasýningin ,,Sjávarsamfélagið” þar sem listafólk úr Listafélaginu Litku sýnir verk sín.
Matey hátíðin heldur áfram fimmtudag og helgina með spennandi dagskrá, þar sem gestir fá tækifæri til að upplifa einstaka sjávarrétti og listviðburði.
Með fylgja myndir frá opnunarhátíðinni:
Myndir: Karl Petersson
-
Markaðurinn6 dagar síðanEvogro ræktunarskápur hámarkar ferskleikann – nýjung hjá BVT
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni1 dagur síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Markaðurinn6 dagar síðanÞrír heimar viskís – frá Skotlandi til Japan og Taívan
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Frétt3 dagar síðanMilljörðum varið í að bjarga krám og lífga upp á verslunargötur
-
Markaðurinn1 dagur síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir
























