Viðtöl, örfréttir & frumraun
Heimsklassa gestakokkar á MATEY í maí
MATEY sjávarréttahátíðin snýr aftur til Vestmannaeyja dagana 22. og 23. maí næstkomandi og fer hún nú fram í fjórða sinn. Hátíðin hefur á skömmum tíma fest sig í sessi sem einn áhugaverðasti viðburður landsins fyrir fagfólk og áhugafólk um sjávarfang.
Í ár verður sérstaklega vel vandað til verka þegar þrír þekktir gestakokkar taka yfir eldhús vinsælla staða í Eyjum. GOTT fær til liðs við sig Hákon Má Örvarsson, veitingastaðurinn Einsi kaldi verður undir stjórn Gústavs Axels Gunnlaugssonar og NÆS fær til sín Vilhjálm Sigurðarson. Þar mun ferskt íslenskt sjávarfang leika aðalhlutverkið og hver kokkur setja sitt mark á matseðilinn.
Fleiri staðir taka þátt í hátíðinni með sínum hætti. Tanginn og Kráin bjóða upp á sérrétti í tilefni hennar og Brothers Brewery kynnir sérlagaðan MATEY-bjór sem bruggaður er sérstaklega fyrir helgina.
Fyrir þá sem hafa áhuga á sjávarréttum í fremstu röð er þetta helgi sem vert er að setja á dagatalið.
Tryggðu þér borð í tæka tíð hér.
Veitingageirinn.is hefur í gegnum árin fjallað vel um hátíðina og engin undantekning verður í ár.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn4 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn3 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn3 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn3 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn6 dagar síðanLíður að jólum





