Frétt
Einsi Kaldi og Vöruhúsið semja við Vestmannaeyjabæ
Vestmannaeyjabær hefur lokið tveimur lögbundnum útboðum á matarþjónustu fyrir stofnanir sveitarfélagsins. Niðurstaðan er sú að Einsi Kaldi heldur áfram að sjá um skólamat en Vöruhúsið tekur við matarþjónustu fyrir eldri borgara.
Samkvæmt upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ var sveitarfélaginu skylt að bjóða þjónustuna út samkvæmt reglum um opinber innkaup þar sem gildandi samningar voru runnir út.
Einsi Kaldi áfram með skólamatinn

Einar Björn Árnason fyrir hönd Einsa Kalda og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, undirrituðu nýjan samning um skólamatarþjónustu.
Í útboði vegna matarþjónustu fyrir leik- og grunnskóla, frístund og Heimaey barst eitt tilboð, frá Einsa Kalda, sem uppfyllti öll skilyrði útboðsgagna og var því samþykkt.
Nýr samningur var undirritaður af Einari Birni Árnasyni fyrir hönd Einsa Kalda og Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar.
Einsi Kaldi hefur séð um þessa þjónustu frá árinu 2012 og hefur á þeim tíma annast matarþjónustu fyrir skóla og tilteknar stofnanir sveitarfélagsins. Í tilkynningu Vestmannaeyjabæjar kemur fram að lögð hafi verið áhersla á vandaða þjónustu og gott samstarf og að bæjarfélagið fagni því að samstarfið haldi áfram.
Vöruhúsið tekur við þjónustu fyrir eldri borgara

Anton Örn Eggertsson fyrir hönd Vöruhússins og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, við undirritun samnings um matarþjónustu fyrir eldri borgara.
Í útboði á matarþjónustu fyrir eldri borgara barst einnig eitt tilboð, að þessu sinni frá Vöruhúsinu, sem uppfyllti skilyrði útboðsgagna og var því samþykkt.
Samningurinn var undirritaður af Antoni Erni Eggertssyni fyrir hönd Vöruhússins og Írisi Róbertsdóttur fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar.
Fram til þessa hefur veitingastaðurinn Gott annast matarþjónustuna fyrir eldri borgara. Vestmannaeyjabær þakkar veitingastaðnum fyrir farsælt samstarf undanfarin ár og segir starfsfólk staðarins hafa sinnt verkefninu af fagmennsku, alúð og metnaði.
Jafnframt býður sveitarfélagið Vöruhúsið velkomið til samstarfs og segist hlakka til að vinna með fyrirtækinu að því mikilvæga verkefni að tryggja eldri borgurum áfram góða, örugga og vandaða matarþjónustu.
Myndir: vestmannaeyjar.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn4 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn4 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni2 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Keppni5 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau



