Viðtöl, örfréttir & frumraun
Kokkanemar frá Suður-Evrópu fengu hlýjar móttökur á sjávarréttahátíð Mateyjar – Myndir

Björgvin Þ. Björgvinsson, fagstjóri sjávarútvegs og matvæla hjá Íslandsstofu ásamt kokkanemunum í heimsókn sinni í Vestmannaeyjum
Kokkaskólakeppnin Concurso Escuelas de Cocina de Bacalao de Islandia (CECBI), gengur út á að kynna íslenskan saltfisk fyrir matreiðslunemum á Spáni, Ítalíu og í Portúgal. Verkefnið er hluti af markaðsstarfi Seafood from Iceland.
CECBI kynningarmyndband
Að sögn Björgvins Þ. Björgvinssonar, fagstjóra sjávarútvegs og matvæla hjá Íslandsstofu, hefur verkefnið verið í mótun frá árinu 2015. það sé í dag orðið vel þekkt á meðal nema og matreiðslumanna í þessum löndum, sem eru aðalneyslusvæði saltfisks.
Hluti af CECBI er keppni þar sem besti saltfiskkokkur hvers lands er valinn. Sigurvegararnir í ár, þau Marta Oti frá Spáni, Alessandro Abbrescia frá Ítalíu og Marco Sobral frá Portúgal, hlutu í verðlaun Íslandsferð til þess að kynnast uppruna þessarar hágæða vöru, en einnig til þess að miðla þekkingu og vera fulltrúar landa sinna á þessum vettvangi.
Sjá einnig: Sigraði í saltfiskeppni og fær að launum draumaferðalag til Íslands
CECBI kokkarnir voru hluti af dagskrá á sjávarréttahátíðinni Matey í Vestmannaeyjum þetta árið. Þau voru viðstödd setningu viðburðarins, fengu að kynnast gestakokkum og smakka rétti af matseðlum þeirra, heimsækja saltfiskvinnslu VSV og fara um borð í fiskiskip, ásamt því að upplifa allt það besta sem Vestmannaeyjar hafa upp á að bjóða.
Rúsínan í pylsuendanum var svo hádegisverður í Herjólfsbæ í Herjólfsdal þar sem kokkanemarnir endursköpuðu sigurrétti sína fyrir valda gesti. Þar nutu þau liðsinnis Gísla Matthíasar Auðunssonar, matreiðslumeistara á Slippnum og víðar.
Slagorð verkefnisins er einmitt Se necesita un pueblo eða það þarf heilt þorp, en ekki er hægt að ímynda sér betri vettvang heldur en Vestmannaeyjar og Matey til þess að fá innsýn inn í hvernig samfélagið vinnur saman að því að búa til framúrskarandi gæðavöru úr sjónum.
Með fylgja myndir frá ferðinni.
Myndir: Islandsstofa.is
-
Markaðurinn4 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn4 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn5 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni3 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði


















