Viðtöl, örfréttir & frumraun
Skemmtilegur þáttur með Gunna Kalla og Dóra DNA
Á sunnudaginn s.l. var fyrsti þáttur í þáttaröðinni Veislan frumsýndur á RÚV. Michelinkokkurinn Gunnar Karl Gíslason og Halldór Laxness Halldórsson betur þekktur sem Dóri DNA fóru um Ísland og slógu upp veislur, sóttu sér hráefni í nærumhverfinu og prófuðu veitingastaði.
Í fyrsta þættinum eru þeir staddir á Norðurlandi. Gunnar Karl tekur á móti Dóra á flugvellinum á Akureyri og þeir félagar fara á heimaslóðir Gunnars.
Fyrsta stopp var Lambinn á Öngulsstöðum hvar Jóhannes, frændi Gunnars, og frú hafa byggt upp ferðaþjónustu. Matthew er kokkur frá Portland Oregon eldar mat sem leggur áherslu á hráefni úr nærumhverfinu og Aurora blandar hanastél fyrir Dóra í fallegu landslagi Eyjafjarðarins. Veisla var svo haldin úti með húsráðendum og þeim hjónum.
Hauganes er þekktur fyrir saltfiskinn frá Elvari Reykjalín og þeir vinirnir fengu sér fisk á Baccalo á leið sinni til Siglufjarðar.
Súkkulaði og kaffihúsið hennar Fríðu á Siglufirði var næsti viðkomustaður og á Hótel Siglunesi gæða þeir sér á dýrindis lambaskanka með öllum helstu kryddum frá Marokkó.
Á Völlum í Svarfaðardal eru þau hjónin, Bjarni og Haddý, búinn að gera upp gömlu kirkjujörðina og rækta þar allt milli himins og jarðar. Ákveðið var að flauta til veislu fyrir nágrannana og setja upp veisluborð í gamla fjárhúsinu.
Fyrsti þátturinn var virkilega skemmtilegur og hvetjum alla til að horfa á með því að smella hér.
Myndir: Julie Rowland
-
Keppni3 dagar síðanÍslenskir nemar keppa á Norrænu nemakeppninni í Svíþjóð
-
Bocuse d´Or2 dagar síðan„Ég var glaður og þakklátur fyrir að vera partur af þessu teymi“ segir Jakob Árni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanNýr bjór þróaður með íslensku pylsuna í huga
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanLamb Street Food og Mat Bar hætta rekstri
-
Markaðurinn3 dagar síðanLærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
-
Markaðurinn3 dagar síðanNámskeið: Ægir Friðriksson matreiðslumaður kennir flökun á fiski
-
Frétt2 dagar síðanSmash Style hamborgarar innkallaðir vegna salmonellu






