Viðtöl, örfréttir & frumraun
BBQ hátíðin Kótelettan af stað á ný
Kótelettan BBQ & Music Festival verður haldin 7. – 10. júlí 2022 en henni hefur verið frestað að undanförnu vegna Covid. Er þetta í tólfta sinn sem að hátíðin er haldin á Selfossi og hefur heldur betur stimplað sig inn sem ein stærsta fjölskyldu og tónlistarhátíð á Íslandi.
BBQ festival Kótelettunar er á sínum stað í ár, laugardaginn 9. júlí, en þar gefst grilláhugamönnum sérstakt tækifæri á að kynna sér allt á grillið sem íslenskir framleiðendur hafa uppá að bjóða og einnig frábært úrval af grillum frá fjölda framleiðenda.
Meðal dagskrárliða er m.a grillsýningin, veltibíllinn, tívoli og svo auðvitað stórglæsileg dagskrá á sviðinu fyrir alla fjölskylduna.
Allar nánari upplýsingar á heimasíðu hátíðarinnar hér.
Mynd: kotelettan.is
-
Markaðurinn6 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Markaðurinn6 dagar síðanNýjar íslenskar kartöflur vekja alltaf eftirvæntingu
-
Markaðurinn6 dagar síðanNý uppskera af íslensku spergilkáli komin í verslanir
-
Frétt5 dagar síðanÁkærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað
-
Frétt4 dagar síðanGordon Ramsay, Marco Pierre White og Heston Blumenthal sameinast á ný í nýrri BBC þáttaröð
-
Frétt2 dagar síðanEndurbyggðu veitingastaðinn frá grunni eftir brunann
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanSex nýir komust í hóp þeirra 299 sem bera virtasta titil vínþjóna í heiminum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel8 klukkustundir síðanRoyal Palm South Beach opnar á ný eftir 12,5 milljarða króna endurbætur



