Frétt
Nýtt matvælaráðuneyti tekur til starfa – Svandís: „Skipum okkur í fremstu röð í framleiðslu hágæða matvæla..“
„Í matvælaráðuneytinu horfum við til þess að Ísland verði í fremstu röð á heimsvísu í framleiðslu hágæða matvæla. Við leggjum áherslu á ábyrga umgengni við náttúru og sjálfbæra nýtingu auðlinda, öfluga nýsköpun og vöruþróun í hæsta gæðaflokki,“
segir í stefnumiði nýs Matvælaráðuneytis sem tekur til starfa í dag 1. febrúar 2022. Svandís Svavarsdóttir er matvælaráðherra.
„ Íslenskur landbúnaður, sjávarútvegur og fiskeldi mynda þungamiðjuna í innlendri framleiðslu matvæla og hafa mikil og sterk tengsl við atvinnu fólksins í landinu. Með ráðuneyti matvæla gefst tækifæri til að leggja áherslu á matvælaframleiðsluna, nýsköpun og eflingu loftslagsmála og bæta þar með lífsskilyrðin í landinu okkar enn frekar. Markmiðið er að hér sé gott að búa og starfa, þannig að hér ríki velsæld og jöfnuður og að þannig verði það áfram fyrir kynslóðir framtíðarinnar.“
Segir Svandís.
Í matvælaráðuneytinu, MAR, mætast málaflokkar sjávarútvegs, landbúnaðar og matvæla auk landgræðslu og skógræktar. Mikil áhersla er lögð á sjálfbærni, jöfnuð og nýsköpun. Í stefnumiði þess segir:
„Matvæla- og fæðuöryggi er eitt meginstefið í störfum okkar sem og hugmyndafræði einnar heilsu þar sem heilbrigt umhverfi, heilsa fólks og heilbrigði dýra mynda samfelldan vef. Vistkerfisnálgun og sjónarmið varúðar eru sá grunnur sem byggt er á þegar taka þarf ákvarðanir og eru þá höfð í huga ýmis samfélagsgæði, viðkvæm vistkerfi til framtíðar litið, jöfnuður óháð efnahag, kyni, uppruna eða búsetu, og hagur heildarinnar í efnahagslegu tilliti, nær og fjær.
Orðspor Íslands á alþjóðavettvangi er okkur hugleikið ásamt þeim hagsmunum sem gæta þarf að í samskiptum við önnur ríki og alþjóðastofnanir. Lofslagsmálin eru allt um lykjandi í öllum okkar störfum, sem og alþjóðlegir samningar um líffræðilega fjölbreytni og sameiginlega ábyrgð mannkyns á möguleikum komandi kynslóða til velsældar og fjölbreyttra tækifæra í lífi og starfi.“
Starfstöðvar hringinn í kring um landið
Undir ráðuneytið heyra sex stofnanir (Hafrannsóknastofnun, Fiskistofa, Verðlagsstofa skiptaverðs, Matvælastofnun, Landgræðslan og Skógræktin) og eitt opinbert hlutafélag (Matís). Fjórar stofnanir ráðuneytisins eru með höfuðstöðvar á landsbyggðinni (Akureyri, Selfossi, Egilsstöðum og Gunnarsholti) og Hafrannsóknastofnun er staðsett í Hafnarfirði. Starfsstöðvar þeirra um landið eru 38 talsins.
Ráðherra mun nú funda með starfsfólki stofnanna og stjórnendum og boða til opinna funda hagaðilum síðar í vetur.
Mynd: stjornarradid.is
-
Keppni6 dagar síðanSkráning í tvær eftirsóttustu matreiðslukeppnir landsins hafin
-
Markaðurinn5 dagar síðanKjúklingabringur í ljúffengri rjóma- og sweet chili sósu
-
Starfsmannavelta2 dagar síðan„Því miður dugði það ekki til“ eigendur Sjávarsetursins tilkynna lokun
-
Markaðurinn3 dagar síðanNýtt íslenskt kerfi einfaldar máltíðapantanir, dregur úr matarsóun og tengist öðrum kerfum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanDuck & Rose lokar á konudag – nýr staður tekur við undir nafninu Gamla Reykjavík
-
Keppni2 dagar síðanAuddi Blö og Steindi Jr. verða kynnar á úrslitakvöldi Tipsý Bar
-
Markaðurinn3 dagar síðanNýtt hjá Garra: Mabrúka, handgerð krydd frá Túnis
-
Markaðurinn4 dagar síðanÞarf alltaf að kaupa nýtt?





