Frétt
Mjólkurverð hækkar á ný
Eftirfarandi verðbreyting tók gildi 5. febrúar 2025:
- Lágmarksverð 1. fl. mjólkur til bænda hækkar um 0,89% úr 141,39 kr./ltr í 142,65 kr./ltr.
Eftirfarandi verðbreyting tekur gildi 16. febrúar 2026:
- Heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem nefndin verðleggur hækkar um 0,89%.
Hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun sem byggði á verðlagi í september 2025.
Verðlagsgrundvöllur kúabús hækkar um 0,89% frá september til desember 2025.
Heildsöluverð á mjólk og mjólkurvörum hækkar um sem nemur veginni kostnaðarhækkun vegna hráefniskaupa og hækkun vinnslu- og dreifingarkostnaðar. Síðast var verðlagt á heildsölustigi í september, byggt á verðlagi í júní.
Breytingar á heildsöluverði mjólkur og mjólkurvara byggja á kostnaðarbreytingum frá júní til desember 2025 en á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 1,42%.
Mynd; úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn6 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn6 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn6 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni2 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Markaðurinn5 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Keppni2 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni




