Frétt
Matvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur úthlutað rúmlega 479 milljónum króna úr Matvælasjóði. Alls hljóta 42 verkefni styrk en 131 umsókn upp á rúmlega tvo milljarða barst til sjóðsins. Hæstu styrkir nema 30 milljónum króna.
„Það er ánægjulegt að úthluta úr Matvælasjóði en þetta er í sjöunda sinn sem úthlutað er úr sjóðnum,“
segir Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra.
„Líkt og fram kom í úttekt sem Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri gerði þá hefur sjóðurinn skapað umtalsverðan ávinning fyrir íslenska matvælageirann. Sjóðurinn hefur því svo sannarlega sannað gildi sitt og er afar mikilvægur fyrir nýsköpun, og þar með verðmætasköpun, í íslenskri matvælaframleiðslu.“
Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskra matvæla, að því er fram kemur í tilkynningu frá Atvinnuvegaráðuneytinu.
Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila. Frá 2020 hefur sjóðurinn veitt styrki til 365 verkefna samtals að upphæð 3.655 milljónir króna.
Verkefnin sem hlutu styrk árið 2026 eru þessi eftir sjóðum:
| Bára | ||
| Umsækjandi | Heiti verkefnis | Styrkupphæð |
| RTD Rannsóknir og tækniþró ehf. | Fiskbeinakex – Cod Bone Crackers | 3.000.000 |
| Hringvarmi ehf. | FeedPod: Novel test-bed infrastructure to support resilient Icelandic Aquaculture. | 3.000.000 |
| Biogenic Minerals ehf. | Steinefnavinnsl úr frákasti ígulkerjavinnslu | 3.000.000 |
| Ration ehf | Píputeljari (In-line Fish Counter) | 3.000.000 |
| Samfélagsmiðstöðin á Þingeyri | Dýrafjarðarmódelið, framtíðarlandbúnaður í Dýrafirði: Greining á fýsileika nýrra búgreina | 3.000.000 |
| iFarm Iceland ehf. | Replication and Environmental Optimization of Dwarf Japonica Rice in a Controlled Indoor System in Iceland | 3.000.000 |
| Arctic Algae ehf. | Þróun fjörugrasagels (e. sea moss gel) fyrir íslenskan markað | 3.000.000 |
| Magnús Már Gunnlaugsson | Vöruþróun líförvandi efnis úr íslenskum þara | 3.000.000 |
| sonomicrolabs ehf. | Þróun og prófanir á nýrri íslenskri tækni til auðlindamælinga í matvælaiðnaði | 3.000.000 |
| Kvalræði ehf. | BYGG+ – Hágæða trefjabætiefni með beta glúkönum úr íslensku byggi til náttúrulegrar blóðsykurstýringar (GLP-1) | 3.000.000 |
| Ræktunarstöðin Lágafelli ehf | Sæhvönn í daglega matreiðslu. | 3.000.000 |
| Rjómabúið Erpsstöðum ehf | Skyr-bítill Að þróa súkkulaðihúðað skyrstykki í fersku og frystru formi sem próteinbita eftir áreynslu. | 3.000.000 |
| Svæðisgarður Snæfellsness ses. | Fýsileikagreining á sameiginlegri dreifilausn staðbundinna matvæla á Snæfellsnesi | 3.000.000 |
| Ísponica ehf. | Development of Arctic Charr Aquaponic Production in Hofsós | 1.450.000 |
| Aron Skúlason | Framtíðarflögur | 3.000.000 |
| Græn leið ehf. | Kampavíns kombucha – gospilla | 3.000.000 |
| iFarm Iceland ehf. | Optimization of High-Brix F1 Seed Strawberry Production in a Fully Controlled Plant Factory in Iceland | 3.000.000 |
| Elínborg Erla Ásgeirsdóttir | Kefir og íslensk náttúra – lífræn framleiðsla | 2.760.000 |
| Margrét Assa Karlsdóttir | IceHide | 3.000.000 |
| Brynjar Björnsson | Gró Gró | 3.000.000 |
| Hörður Guðjón Kristinsson | Matvælaþróun og rannsóknir með stuðningi gervigreindar | 2.000.000 |
| Arndís Harpa Einarsdóttir | Fýsileikakönnun á snemmbúinni matjurtaframleiðslu í 400m2 köldu gróðurhúsi í Moshlíð, Barðaströnd | 3.000.000 |
| Kelda | ||
| Umsækjandi | Heiti verkefnis | Styrkupphæð |
| Háskóli Íslands | Skötuveisla | 29.994.498 |
| Matís ohf. | ChickPro: nýting fjaðra og hliðarafurða úr kjúklingaframleiðslu | 29.958.564 |
| Háskólinn á Akureyri | JÁRN-FÆÐUBÓTAREFNI ÚR LAXABLÓÐI | 30.000.000 |
| Lava Seaweed ehf. | SÖLution – Þróun á vinnsluferli til útdráttar á XOS afurð úr íslenskum landræktuðum rauðþörungum (Palmaria palmata) | 30.000.000 |
| Hafrannsóknastofnun, rannsókn | Áhrif mismunandi dýrasvifs á fyrstu stigum þorskeldis á seiðagæði og langtímavöxt. | 30.000.000 |
| GG2023 ehf. | Fóðrunarvirði og áhrif staðbundinna grasköggla þurrkuðum með glatvarma á vöxt og heilsu sauðfjár | 15.000.000 |
| Háskóli Íslands | Bestun innanhússræktunar og vöruþróunar á stórþörungum í borholusjó / Optimization of indoor cultivation and product development from seaweed in borehole sea water | 30.000.000 |
| Ráðgjafarmiðst landbúnaðar ehf. | Nýsköpun og sjálfbær ræktun íslenska hestsins – Hermilíkan til verndunar erfðaauðlindar | 3.298.570 |
| Afurð | ||
| Umsækjandi | Heiti verkefnis | Styrkupphæð |
| Arna ehf. | PLAN B – Nýting íslenskra örþörunga í markfæði | 18.544.410 |
| Von harðfiskverkun ehf. | Knock – The No. 1 healthy snack in the world | 30.000.000 |
| Akurós ehf. | Kolmunni í snakk | 30.000.000 |
| Flight Song ehf. | Lífrænn dvergbítur á íslenskan markað | 3.000.000 |
| F-61 sf. | Bragð af arfleifð – Íslenskur saltfiskur (e. A Taste of Heritage – Icelandic Bacalao) | 17.017.478 |
| Livefood ehf. | Brauðástur | 27.790.000 |
| Isea ehf. | Fullvinnsla umhverfisvottaðra áburðarafurða úr sjávarþörungum | 15.900.000 |
| Laxey ehf. | Fiskeldismykja sem áburður | 15.881.994 |
| Tandraorka ehf. | Lífkol í laxfóður. Ný verðmæti úr íslenskum lífmassa | 15.237.500 |
| Fjársjóður | ||
| Umsækjandi | Heiti verkefnis | Styrkupphæð |
| Bifröst Foods ehf. | Fullvinnsla íslenskra sjávarafurða: Próteinríkt heilsusnakk úr sjálfbærum auðlindum fyrir neytendamarkað í Bretlandi. | 13.400.000 |
| Jurt ehf. | Markaðsherferð fyrir nýja vöru, wasabi smjör – Nordic Wasabi Smjör | 20.186.250 |
| Framhugsun ehf. | Rabarbaron – uppbygging vörumerkis og markaðsinnviða til sóknar á markaði | 10.950.000 |
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Markaðurinn5 dagar síðanNetlagersala Ásbjarnar hafin með allt að 75% afslætti
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Markaðurinn5 dagar síðanHeinz sósur í 33 ml. Hentugt fyrir hótel, gistiheimili og veitingarekstur
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu



