Vertu memm

Frétt

Alþingi samþykkir róttækar breytingar á heilbrigðiseftirliti landsins

Birting:

þann

Matur - Færiband

Alþingi hefur samþykkt frumvarp Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum  (einföldun eftirlits).

Með frumvarpinu eru heilbrigðisnefndir sveitarfélaga lagðar niður, horfið frá hefðbundinni svæðisskiptingu heilbrigðiseftirlits og framkvæmd eftirlitsins í meginatriðum færð til Umhverfis- og orkustofnunar.

Frumvarpið er liður í stefnu ríkisstjórnarinnar um einföldun regluverks, hagræðingu og sameiningu stofnana og hluti af heildstæðum breytingum á eftirliti með atvinnustarfsemi sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og atvinnuvegaráðherra hafa unnið að. Lögin taka gildi 1. janúar 2027.

Breytingarnar byggja á umfangsmikilli greiningar- og undirbúningsvinnu sem má rekja tvo áratugi aftur í tímann og hefur ítrekað leitt í ljós þörf fyrir uppstokkun á fyrirkomulagi eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum.

Þar hefur meðal annars verið bent á skort á samræmi í framkvæmd eftirlits, ólíka framkvæmd milli svæða og þörf á skýrum yfirstjórnar- og eftirlitsheimildum  í málaflokkunum.

Samræmdara eftirlit

Yfirumsjón eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum hefur verið á vegum Umhverfis- og orkustofnunar en framkvæmd eftirlitsins hefur verið á hendi níu heilbrigðiseftirlitssvæða sveitarfélaga. Með lögunum færist framkvæmd eftirlitsins og útgáfa starfsleyfa til Umhverfis- og orkustofnunar. Sú grundvallarbreyting verður því á að nú er  málaflokkurinn á einu stjórnsýslustigi, sem veitir aukin tækifæri til einföldunar, samræmingar og skilvirkni í framkvæmd.

Eldhús - Matreiðslumaður - Kokkur

Markmið laganna er að skapa samræmdara og markvissara fyrirkomulag eftirlits um land allt. Samhliða breytingunum mun Umhverfis- og orkustofnun innleiða nýtt upplýsinga- og verkefnastjórnunarkerfi sem einfaldar yfirfærslu verkefna og sjálfvirknivæðir afmarkaða þætti starfsins.

Samræmt form eftirlitsskýrslna, skráning frávika og samhæft ferli vegna eftirfylgni munu stuðla að bættu viðmóti og auknum skýrleika fyrir eftirlitsþega og samræmdri framkvæmd eftirlits um allt land. Með uppfærðu áhættumati vegna reglubundins eftirlits er gert ráð fyrir að eftirlitsferðum til þeirra fyrirtækja sem standa sig vel muni fækka og kostnaður minnka.

Eftirlitið fer fram á starfsstöðvum um allt land

Vinna við innleiðingu breytinganna stendur nú yfir og er sérstök áhersla lögð á að byggja áfram á þeirri þekkingu og reynslu sem starfsfólk heilbrigðiseftirlitanna býr yfir. Starfsfólk heilbrigðiseftirlita sem hefur sinnt eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum mun njóta forgangs að þeim störfum sem verða til hjá Umhverfis- og orkustofnun vegna breytinganna.

Stofnunin rekur nú þegar starfsstöðvar í Reykjavík, á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Með breytingatillögu sem samþykkt var á Alþingi var hnykkt sérstaklega á því í lagatexta að Umhverfis- og orkustofnun skuli hafa starfsfólk staðsett á höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi, Suðurlandi og Suðurnesjum.

Myndir: úr safni

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið