Viðtöl, örfréttir & frumraun
Ekkert kjöt í boði hjá Geranium
Michelin kokkurinn Rasmus Kofoed í Kaupmannahöfn hefur staðfest að hann muni taka kjöt af matseðlinum á veitingastaðnum sínum Geranium, en staðurinn er í öðru sæti á lista heims yfir 50 bestu veitingastaði, frá og með janúar 2022.
Sjá einnig:
„Mér finnst kominn tími á breytingar hjá Geranium. Mér líkar alltaf við áskorun og næsta áskorun er að búa til ótrúlega flotta og nýja rétti fyrir matseðilinn.“
Segir Kofoed í fréttatilkynningu.
Kofoed mun samt sem áður bjóða upp á signature réttina sína sem hann og hans teymi hafa þróað í gegnum árin og gestir geta pantað réttina fyrirfram.
Kofoed heillast af heilbrigðum lífsstíl:
„Þegar þú ferð á alla þessa frábæru veitingastaði, jafnvel Geranium, jafnvel þótt áherslan hafi alltaf verið að skapa gott jafnvægi í máltíðinni, þá er það stundum bara of mikið. Of mikið prótein, of mikil fita osfr.“
Þessi tilkynning kemur í sömu viku og bandaríski matreiðslumaðurinn Daniel Humm frá Eleven Madison Park tilkynnti um brottför sína frá Claridge’s í London, eftir að hótelið hafnaði sýn hans um 100 prósent vegan-væðingu á matseðli.
Sjá einnig:
Daniel Humm hættir á Claridge eftir ágreining um vegan-væðingu
Mynd: geranium.dk / Claes Bech-Poulsen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 klukkustundir síðanEfnisstraumar á veitingageirinn.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMyndir frá 30 ára afmælishátíð Hótel- og matvælaskólans
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanGóðgerðarhlaðborð til stuðnings fjölskyldum í Nepal
-
Keppni7 dagar síðanJanus kom, sá og sigraði í sinni fyrstu keppni
-
Frétt6 dagar síðanVeitingastaðurinn Strikið rýmdur eftir að eldur kom upp
-
Keppni3 dagar síðanElvar keppti fyrir Íslands hönd í Singapore
-
Keppni5 dagar síðanMarína Björk bakaranemi sigraði í kleinuhringjakeppninni
-
Keppni6 dagar síðanParís 1920 í aðalhlutverki í árlegum keppnum Garra




