Starfsmannavelta
Óljóst hvort Grillið verður opnað aftur – Hótel Saga leitar nýrra hluthafa
Bændasamtökin leita nýrra hluthafa að rekstrarfélagi Hótels Sögu. Fyrirtækið stefnir að öllu óbreyttu í þrot. Félagið skilaði 450 milljóna króna tapi í fyrra og er eigið fé félagsins neikvætt um hundruð milljóna króna.
Spilaði fall WOW air og kyrrsetning Boeing 737 MAX véla inn í versnandi stöðu á liðnu ári að því er Ingibjörg Ólafsdóttir, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, segir í umfjöllun um stöðu þess í Morgunblaðinu í dag.
„Leitað verður eftir því að fá inn nýtt fé í formi nýrra hluthafa og fjárhagslegrar endurskipulagningar að öðru leyti. Sú vinna er á viðkvæmu stigi. Ferðaþjónustufyrirtæki eru öll í erfiðleikum eins og kunnugt er og Hótel Saga er þar engin undantekning. Við vonumst til að ná árangri við okkar endurskipulagningu á þessu ári og trúum því að það takist.“
Á þessari stundu er ekki ljóst hvort Grillið, eitt frægasta og virtasta veitingahús landsins til áratuga, verður opnað aftur og mun það að sögn Ingibjargar ráðast af því hvort rekstrarfyrirkomulag staðarins verður hagkvæmt eða ekki.
Á síðustu árum hefur Hótel Saga staðið í miklum framkvæmdum á hótelinu og nemur fjárfesting í þeirri uppbyggingu um tveimur milljörðum á árunum 2017-2018.
Sjá einnig:
Hótel Saga gerir kröfu um að matvörur séu upprunamerktar – Viðtal
-
Keppni6 dagar síðanMyndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
-
Markaðurinn4 dagar síðanEvogro ræktunarskápur hámarkar ferskleikann – nýjung hjá BVT
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHákon Bragi seldi hlut sinn í Fæby og tekur við nýju starfi hjá ISS
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanMyndasafn: Glæsilegt sælkerakvöld með Bocuse d’Or kokkum Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Markaðurinn6 dagar síðanViltu öðlast ofurkrafta – Ertu að nýta gervigreindina í daglegu starfi?
-
Markaðurinn5 dagar síðanBrauð mánaðarins með stökkri og fallegri áferð
-
Markaðurinn3 dagar síðanÞrír heimar viskís – frá Skotlandi til Japan og Taívan




