Uppskriftir
Harissa kryddaðar franskar með Tzatzikisósu – Smellpassar með grillmat
Algjörlega ómótstæðilegar franskar kartöflur með smá „kicki“ sem smellpassa með til dæmis grillmat eða kjúkling. Þetta er uppáhalds leiðin mín til að bera fram franskar kartöflur og Tzatzikisósan er ómissandi með.
Sem meðlæti fyrir 2:
Japanskt majónes, 40 ml
Sýrður rjómi, 40 ml
Tzatziki kryddblanda, 2 tsk / Kryddhúsið
Salt eftir smekk
Franskar kartöflur, 400 g / Ég nota Aviko Super Crunch
Marokkósk harissa kryddblanda, 0,5 tsk / Kryddhúsið
Hvítlauksduft, 0,5 tsk / Kryddhúsið
Paprikuduft, 0,5 tsk / Kryddhúsið
Kóríander eða steinselja, 3 g
Aðferð:
Hrærið saman majónes, sýrðan rjóma og Tzatziki kryddblöndu. Smakkið til með salti og geymið í kæli.
Setjið frönsku kartöflurnar í stóra skál og veltið upp úr olíu og salti.
Dreifið frönsku kartöflunum yfir bökunarplötu með ofnpappír og bakið eftir leiðbeningum á umbúðum en hrærið í 2-3 yfir bökunartímann.
Saxið kóríander eða steinselju mjög smátt.
Færið bökuðu frönsku kartöflurnar í stóra skál á meðan þær eru enn heitar og kryddið með harissa kryddi, hvítlauksduft og papriku. Veltið kartöflunum vel upp úr kryddinu og stráið söxuðum kóríander eða steinselju yfir og blandið saman við frönsku kartöflurnar.
Mynd og höfundur: Snorri Guðmundsson | Matur & Myndir
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanVerðlaunavín Gyllta Glasið 2026 – Fyrri partur
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanLokar dyrunum eftir krefjandi rekstur
-
Markaðurinn4 dagar síðanStálborð á afslætti – fyrstur kemur, fyrstur fær
-
Keppni1 dagur síðanMyndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival
-
Markaðurinn1 dagur síðanVittorio Agosti frá Fabbri heimsótti Ísland með bragðmiklar nýjungar í samstarfi við ÓJ&K-ÍSAM – Myndir og vídeó
-
Markaðurinn5 dagar síðanAirfryer rauðspretta á brioche sem svíkur engan
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLatínó-stemning tekur yfir Kolaportið um helgina
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun9 klukkustundir síðanMichel Chapoutier heimsækir Ísland og heldur vínkvöld á Eiríksson Brasserie




