Keppni
Hefur þú „keppnis“ áhuga á matreiðslu?
Ertu lærður matreiðslumaður, matreiðslunemi eða pastry-kokkur? Hefur þú gaman af því að elda í góðra vina hópi, skiptast á bransasögum og ferðast til útlanda? Ef svo er þá gætir þú átt erindi í Kokkalandsliðið!
Nú er rétta tækifærið. Kokkalandsliðið mun keppa á heimsmeistaramótinu í matreiðslu sem haldið verður í Lúxemborg haustið 2022 og fram undan er strangt og skemmtilegt æfingaferli. Við leitum að kokkum, desert/pastry-kokkum og nemum sem hafa mikinn áhuga og metnað fyrir mat og getu til að taka þátt í ógleymanlegri lífsreynslu sem gerir okkur öll að betri fagmönnum.
Ekki er skilyrði að hafa tekið þátt í keppni áður en vilji og geta til hópvinnu og að tilheyra sterkri liðsheild er algjört lykilatriði.
Allir sem hafa áhuga á að taka þátt eru hvattir til að senda inn umsókn og ferilskrá á [email protected]
Við leitum einnig að ungliðum sem verða yngri en 23 ára 2022.
Fyrir frekari upplýsingar hafið samband á [email protected]
Björn Bragi, forseti Klúbbs matreiðslumeistara
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Frétt5 dagar síðanDýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað
-
Markaðurinn4 dagar síðanNetlagersala Ásbjarnar hafin með allt að 75% afslætti
-
Markaðurinn4 dagar síðanHeinz sósur í 33 ml. Hentugt fyrir hótel, gistiheimili og veitingarekstur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Vín, drykkir og keppni23 klukkustundir síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 klukkustundir síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu



