Uncategorized @is
Hvetjum alla til að bjóða fram krafta sína – Hátíðarkvöldverður Klúbbs matreiðslumeistara
Ég vona að allir hafi notið sín yfir hátíðarnar og færi óskir um gleði og farsæld á nýju ári.
Eins og undanfarna áratugi byrjar árið hjá Klúbbnum á okkar árlega Galadinner eða hátíðarkvöldverð eins og hann hefur verið kallaður síðustu ár. 7. janúar verður hátíðarkvöldverðurinn haldinn í 30. sinn og er því stórafmæli framundan en þema kvöldsins er einmitt „afmæli“. Friðgeir Ingi hefur farið fyrir undirbúningsnefndinni og stefnir allt í frábæra kvöldskemmtun hjá Friðgeiri og félögum. Eins og oft áður er orðið uppselt og gestir komnir yfir 400 sem er frábært og sýnir glögglega hversu eftirsóknavert það er að koma og taka þátt.
Stjórnarfundur NKF verður haldinn á Íslandi 6. janúar næstkomandi og verður stjórnin öll gestir á kvöldinu og verður það skemmtilegt að leyfa þeim að upplifa kvöldið með okkur því lýsingar okkar á hátíðarkvöldverðinum vekja mikla athygli útfyrir landssteinana.
Að lokum þá vil ég hvetja alla félagsmenn KM sem og aðra kokka og nema að koma og taka þátt í glæsilegustu veislu ársins, það þarf margar hendur til að vinna veislu sem þessa og einnig skemmtilegt að hitta góða félaga í hátíðarskapi.
Munum öll eftir snyrtilegum kokkaklæðnaði og hreinum skóm :), þeir félagar sem hafa verið sæmdir orðum skulu bera þær um kvöldið. Strompar verða á staðnum.
Fordrykkur hefst kl 18:00 og því er gott að koma fyrr eða hafa samband við Friðgeir til að bjóða fram krafta sína.
Hlakka til að sjá sem flesta og ítreka að allir eru velkomnir og sérstaklega nemarnir ykkar.
Bestu kveðjur,
Björn Bragi Bragason
Forseti KM.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Keppni2 dagar síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Markaðurinn2 dagar síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Frétt3 dagar síðanEiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu
-
Frétt4 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020
-
Markaðurinn1 dagur síðanLaus störf í eldhúsi á fjögurra stjörnu hóteli við Öræfajökul




