Viðtöl, örfréttir & frumraun
100 myndir frá hátíðarkvöldverði KM
Hátíðarkvöldverður Klúbbs matreiðslumeistara (KM) var haldinn í Hörpu í Silfurbergi 11. janúar sl. og er einn stærsti og glæsilegasti viðburður ársins.
Sjá einnig: Áætla um 100 matreiðslumenn og 50 framreiðslumenn að störfum í hátíðarkvöldverði KM
Á kvöldverðinum töfra fremstu matreiðslumeistarar landsins fram margra rétta máltíð sem sameinar nýstárlegar útfærslur og virðingu fyrir íslenskum hráefnum, en þessi viðburður hefur verið haldinn árlega síðan 1988. Hver réttur er listaverk, bæði á bragðlauka og fyrir augað, og speglar metnað, sköpunargleði og ástríðu meistaranna.
Kvöldið hófst með fordrykk og léttum forréttum sem buðu gesti velkomna og opna bragðskynið fyrir komandi veisluhöldum og voru um 100 matreiðslumenn og 50 framreiðslumenn sem sáu um að allt færi vel fram.
Allur ágóði kvöldsins rann til starfsemi Klúbbs matreiðslumeistara, þannig verður klúbbnum kleift að efla matargerðarlist og styðja framgöngu klúbbfélaga bæði hér heima og erlendis með rekstri Kokkalandsliðsins og keppninnar um Kokk ársins. Miðaverð var 75.000 kr. Næsta stóra mót Kokkalandsliðsins er heimsmeistaramót sem haldið verður í Lúxemborg 2026.
- Halldór Hafliðason
- Bjarki Hilmarsson ávallt reiðubúinn að aðstoða
Yfirmatreiðslumaður kvöldsins var Arnar Darri Bjarnason frá La Primavera og hver réttur var paraður með sérvöldum vínum og öðrum drykkjum sem Vínþjónasamtök Íslands sá um og þónustan var í höndum Barþjónaklúbbs Íslands.
Í aðalréttinum var íslenskt lamb að hætti Kokkalandsliðsins, fiskréttir, geit, ostar svo fátt eitt sé nefnt og allt unnið með framúrskarandi tækni og einstökum hráefnum. Sætindin settu lokapunkt á veisluna, þar sem eftirréttur Kokkalandsliðsins og Konfektmoli ársins 2024 sameinuðu sætt og súrt á nýstárlegan hátt.
Matseðillinn í heild sinni
Lystaukar
Lystaukar að hætti Kokkalandsliðsins
Ábyrgðarmenn: Ísak Aron Jóhannsson frá Múlakaffi og fyrirliði Kokkalandsliðsins og Bjarki Snær Þorsteinsson Grænmetiskokkur ársins 2024
Matseðill
Bleikja – Rúgbrauð – Súrmjólk
Ábyrgðarmaður: Sindri Freyr Ingvarsson frá Berjaya Hótelinu á Akureyri
Geit – Könglar – Plómur
Ábyrgðarmaður: Davíð Örn Hákonarson frá Skreið
Kirsuberjatómatar – Sellerí – Skessujurt
Ábyrgðarmaður: Bjarki Snær Þorsteinsson frá veitingastaðnum Dæjinn, landsliðskokkur og Grænmetiskokkur ársins 2024
Þorskkinnar – Roð – Beltisþari
Ábyrgðarmaður: Gísli Matthías Auðunsson frá Slippinum í Vestmannaeyjum
Lamb að hætti Kokkalandsliðsins
Ábyrgðarmenn: Ísak Aron Jóhannsson og Úlfar Úlfarsson landsliðskokkar
Ostar að hætti KM Suðurland
Ábyrgðarmaður: Bjarni Haukur Guðnason frá Laugalandsskóla
Eftirréttur Kokkalandsliðsins 2024
Ábyrgðarmaður: Erla Þóra Bergmann Pálmadóttir landsliðskokkur
Konfektmoli ársins 2024
Ábyrgðarmaður: Wiktor Pálsson
Um 400 manns mættu á hátíðarkvöldverðinn og stemningin á kvöldverðinum var hlý og fagmannleg, þar sem gestir fengu tækifæri til að njóta matarins í góðum félagsskap ásamt lifandi tónlist.
Meðfylgjandi myndir tók ljósmyndarinn Mummi Lú.
Myndir: Mummi Lú
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Markaðurinn5 dagar síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanJapan orðið stærsti innflytjandi bjórs til Ástralíu
-
Markaðurinn5 dagar síðanGazpacho súpa sem svalar á heitum sumardögum
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Markaðurinn6 dagar síðanLangt geymsluþol og minni sóun með Frischli jógúrt
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Frétt6 dagar síðanKaup Dranga á Brauð & Co. undirrituð






























































































