Food & fun
Matar- og skemmtihátíðin Food and Fun hafin
Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, og Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, settu í dag matar- og skemmtihátíðina Food and Fun. Viðstaddir setninguna voru þeir erlendu matreiðslumeistarar sem á landinu eru staddir til þess að elda ofan í gesti hátíðarinnar ásamt íslenskum starfsbræðrum og öðrum aðstandendum.
Við setninguna var skorin og síðan snædd tveggja metra löng og sérbökuð Food and Fun-ostakaka. Hátíðin er nú haldin í fimmta sinn og á fjölmörgum veitingastöðum og er á sama tíma og Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar.
Food and Fun hátíðin er liður í markaðsstarfi Icelandair, í samstarfi við íslenskan landbúnað, veitingamenn og Reykjavíkurborg. Tilgangur hennar er að kynna gæði íslenskra matvæla og veitingamennsku með nýstárlegum hætti, eins og segir í fréttatilkynningu frá Icelandair. Heimskunnir matreiðslumeistarar frá Bandaríkjunum og Evrópu munu elda ofan í gesti á veitingastöðunum Grillinu, Sigga Hall, Rauðará, Hótel Holti, La Primavera, Einari Ben, Apótekinu, Sjávarkjallaranum, Salti, Skólabrú og Vox.
Á laugardag verður í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu haldin alþjóðleg keppni matreiðslumeistara, sem opin verður öllum áhugamönnum um eldamennsku og matarmenningu. Sérstakur Food and Fun hádegisverður verður í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi í boði samgönguráðherra, þar sem nemendur fá að spreyta sig.
Greint frá á Mbl.is
-
Keppni4 dagar síðanBrons hjá Íslandi í bæði framreiðslu og matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanRúnar snýr aftur á Hótel Holt sem yfirkokkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanPítsuofninn kominn á GOTT eftir lokun Pítsugerðarinnar
-
Íslandsmót barþjóna3 dagar síðanReykjavík Cocktail Week lauk með úrslitum og hátíðarkvöldverði í Gamla Bíó – Myndaveisla
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanKonráð Hilmarsson um Marseille: „Skemmtilegast var að heyra að Ísland væri komið áfram“
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanMyndir frá formlegri opnun á nýjum stað hjá Mat og drykk
-
Markaðurinn6 dagar síðanKlassískt lasanja fær nýtt bragð með kotasælu
-
Frétt2 dagar síðanAftur greinist salmonella í nautahakki




