Viðtöl, örfréttir & frumraun
Rúnar snýr aftur á Hótel Holt sem yfirkokkur
Rúnar Gíslason hefur tekið við sem yfirkokkur á Hótel Holti í Reykjavík og snýr þar með aftur á vettvang sem hann þekkir vel, en hann starfaði áður á hótelinu á tímum mikillar grósku.
Rúnar rekur jafnframt Kokkana veisluþjónusta og Spíran í Garðheimum. Að hans sögn er það bæði spennandi og krefjandi verkefni að taka við eldhúsinu á Holtinu. Hann segir staðinn hafa sterka ímynd og sögu og að mikilvægt sé að halda í gæðin og hefðirnar á sama tíma og matseðillinn þróist áfram.
Hann rifjar jafnframt upp fyrri veru sína á staðnum og segir að síðasta starfið áður en hann fór í eigin rekstur hafi verið á Hótel Holti, þegar Hákon Már Örvarsson, Hallgrímur Ingi Þorláksson og Ægir Finnbogason störfuðu á Holtinu þegar mikil gróska var í eldhúsinu.
Á Hótel Holti hefur lengi verið rekinn einn þekktasti veitingastaður landsins sem gegnt hefur mikilvægu hlutverki í veitingasögu Reykjavíkur.
Nánar má lesa um málið á mbl.is.
Mynd: úr einkasafni
-
Markaðurinn5 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn5 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn6 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni4 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt2 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Keppni1 dagur síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni




