Keppni
Kokkur ársins 2016 – Fimm keppendur komnir í úrslit

Fimm keppendur komnir í úrslit
F.v. Denis Grbic, Ari Þór Gunnarsson, Axel Björn Clausen Matias, Hafsteinn Ólafsson og Sigurjón Bragi Geirsson
Undanúrslit í keppninni Kokkur ársins 2016 fóru fram í gærdag, mánudaginn 8. febrúar á Kolabrautinni í Hörpu. Tíu keppendur tóku þátt í undanúrslitum en fimm komust áfram og tryggðu sér þátttökurétt í úrslitakeppninni sem haldin verður í Hörpu laugardaginn 13. febrúar.
Allir keppendur útbjuggu kjúklingarétt og dæmdi 8 manna dómnefnd réttina út frá útliti, bragði og vinnubrögðum í eldhúsi. Óhætt er að segja að dómnefnd hafi átt ærin starfa við að velja á milli réttanna tíu enda hver öðrum betri.
Þeir 5 keppendur sem komust áfram í úrslitakeppnina eru:
- Ari Þór Gunnarsson – Fiskifélagið
- Axel Björn Clausen Matias – Fiskmarkaðurinn
- Denis Grbic – Grillið Hótel Saga
- Hafsteinn Ólafsson – Nasa
- Sigurjón Bragi Geirsson – Kolabrautin
Einnig var öllum sigurvegurum keppninnar frá upphafi veitt viðurkenning en keppnin hefur verið haldin frá árinu 1994.
Úrslitakeppnin verður sem fyrr segir haldin laugardaginn 13. febrúar í Flóa í Hörpu milli kl 15:00-23:00. Keppendur munu útbúa þriggja rétta matseðil sem samanstendur af forrétti, aðalrétti og eftirrétti. Samhliða úrslitakeppninni verður glæsilegur fjórrétta Kokkalandsliðskvöldverður og vegleg dagskrá.
Ragnheiður Elín Árnadóttir Iðnaðar-og viðskiptaráðherra mun krýna sigurvegara keppninnar kl. 23:00 sem hlýtur titilinn Kokkur ársins 2016.
Sigurvegarinn mun keppa fyrir Íslands hönd í keppninni „Nordic Chef Of The Year“ sem fram fer 8. mars 2016 í Herning Danmörku.
Það eru Klúbbur matreiðslumeistara og Kokkalandsliðið sem standa að keppninni Kokkur ársins, að því er fram kemur í tilkynningu.
Ljósmyndir: Eiríkur Ingi Helgason
-
Áhugavert3 dagar síðanMyndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMyndir frá 30 ára afmælishátíð Hótel- og matvælaskólans
-
Keppni3 dagar síðanJanus kom, sá og sigraði í sinni fyrstu keppni
-
Frétt2 dagar síðanVeitingastaðurinn Strikið rýmdur eftir að eldur kom upp
-
Markaðurinn5 dagar síðanGlútenlausar vörur í stóreldhúsið
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 47 prósenta afsláttur í september
-
Frétt5 dagar síðanRannsókn á alvarlegu E. coli-hópsmiti enn ólokið
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanSælkerabúðin opnar í Turninum í Kópavogi




