Keppni
Verður þú næsti Matreiðslumaður ársins 2014? Krister Dahl verður yfirdómari
Ekki missa af tækifærinu til að taka þátt í þessari skemmtilegu keppni og eiga möguleika á að vinna vegleg verðlaun ásamt því að taka þátt fyrir íslands hönd í keppninni um Matreiðslumann Norðurlandana en Viktor Örn Andrésson Matreiðslumaður ársins 2013 er einmitt handhafi þess titils.
Hráefnið í forkeppninni er eftirfarandi:
Í forrétt er skötuskelskinn, humar og fennika. Ef keppendur eru í vandræðum með að útvega kinn þá hefur fiskverslunin Hafið boðið keppendum upp á að útvega ferska kinn ef haft er samband tímanlega á netfangið [email protected].
Í aðalrétt er Kálfahryggvöðvi og hnúðkál. kálfahryggurinn þarf að vera af nautgrip undir 1 árs aldri en ekki er skylda að kjötið sé íslenskt né að kálfurinn sé svokallaður mjólkurkálfur. Innflutt kálfafillet fæst meðal annars hjá Sælkeradreifingu. Keppnisnefndin hefur ákveðið að taka Kálfabris út úr körfunni þar sem erfitt hefur verið að útvega það og því ekki hægt að gera kröfur um að það sé notað í keppninni.
Yfirdómari keppninnar er Krister Dahl, en hann er einn virtasti keppnis matreiðslumaður Skandinavíu, hans seinasta og stærsta afrek á keppnissviðinu var að gera Sænska kokkalandsliðið að Ólympíumeisturum árið 2012 í Erfurth í Þýskalandi sem er stærsta matreiðslukeppni landsliða í heiminum. Það er mikill heiður fyrir Klúbb Matreiðslumeistara að fá Krister til að dæma í keppninni um titilinn Matreiðslumaður ársins 2014.
Það styttist í að skráningin ljúki og ekki seinna vænna að
skrá sig og hefja æfingar.
Keppnis kveðja
Nefndin
-
Keppni3 dagar síðanKosning hafin, hver hlýtur titilinn Kokkur ársins 2026?
-
Keppni3 dagar síðanFimm tryggja sér sæti í úrslitum Kokk ársins eftir harða forkeppni
-
Keppni3 dagar síðanLesendakönnun, hver verður Grænmetiskokkur ársins 2026?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanKokteilagerðin færir kokteilalistina heim til fólks
-
Keppni22 klukkustundir síðanHver hreppir titilinn Kokkur ársins 2026? Bein útsending
-
Keppni12 klukkustundir síðanÍsak Aron Jóhannsson er Kokkur ársins 2026 – úrslit úr öllum keppnum
-
Keppni3 dagar síðanFimm keppendur takast á um titilinn Grænmetiskokkur ársins 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun16 klukkustundir síðanMichelin-kvöld á Moss með Tom Aikens og Marqués de Murrieta






