Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Íslandshótel opna nýja veitingastaði á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju

Birting:

þann

DOM Brasserie & Bar - Hilton Reykjavík

DOM Brasserie & Bar

Tveir nýir veitingastaðir, DOM Brasserie & Bar og LAUF Bistro, hafa opnað á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju. Íslandshótel annast rekstur beggja staðanna, sem eru hluti af aukinni áherslu félagsins á veitingarekstur samhliða fjölgun hótela í rekstri þess.

DOM opnar á Hilton Reykjavík

DOM Brasserie & Bar er staðsettur á Hilton Reykjavík við Suðurlandsbraut. Áhersla er lögð á að staðurinn þjóni fjölbreyttum hópi gesta yfir daginn, allt frá morgunverði fyrir hótelgesti, viðskiptafundum yfir hádegisverði og til kvöldverðar. Veitingarekstur hótelsins þjónar jafnframt ráðstefnum, veislum og öðrum viðburðum.

DOM Brasserie & Bar - Hilton Reykjavík

DOM Brasserie & Bar

Íslensk hráefni eru áberandi á matseðli DOM. Í hádeginu er boðið upp á hlaðborð með heitum og köldum réttum og um helgar er boðið upp á brönshlaðborð. DOM Bar er jafnframt hluti af veitingarekstri hótelsins og þar er sérstakur barmatseðill.

DOM Brasserie & Bar - Hilton Reykjavík

DOM Brasserie & Bar

Guðmundur Víðir Víðisson er yfirmatreiðslumeistari Hilton Reykjavík og DOM Brasserie & Bar. Hann hefur víðtæka reynslu úr íslenskum veitingarekstri og hefur meðal annars starfað á Argentínu steikhúsi, Reykjavík Meat og Mathúsi Garðabæjar. Áður en hann gekk til liðs við Íslandshótel hafði hann umsjón með eldhúsum VOX og Satt Restaurant.

LAUF Bistro opnar á Hótel Reykjavík Öskju

LAUF Bistro - Hótel Reykjavík Öskju

LAUF Bistro

Á Hótel Reykjavík Öskju hefur LAUF Bistro opnað með áherslu á vandaða en aðgengilega matargerð og afslappað andrúmsloft. Þar er boðið upp á morgunverðarhlaðborð, rétti af matseðli og kvöldverðarhlaðborð auk brönshlaðborðs um helgar og á almennum frídögum.

LAUF Bistro - Hótel Reykjavík Öskju

LAUF Bistro

Yfirmatreiðslumaður LAUF Bistro er Ómar Stefánsson, sem á að baki langan feril í íslenskum veitingarekstri. Ómar lærði matreiðslu í Kaupmannahöfn hjá Erwin Lauterbach á veitingastaðnum Saison og hefur meðal annars starfað á VOX og DILL. Hann var jafnframt í kokkalandsliðinu í fjögur ár. Síðar starfaði hann sem yfirkokkur á Fosshótel Stykkishólmi og leiddi opnun Fröken Reykjavík Kitchen & Bar á Hótel Reykjavík Saga árið 2023.

LAUF Bistro - Hótel Reykjavík Öskju

LAUF Bistro

„Veitingarekstur er mikilvægur hluti af starfsemi Íslandshótela. Með DOM Brasserie & Bar og LAUF Bistro erum við að byggja upp tvo ólíka veitingastaði sem þjóna bæði hótelgestum og fólki sem býr og starfar á höfuðborgarsvæðinu.

Veitingastaðirnir verða sjálfstæð vörumerki með skýra sérstöðu og ásýnd. Við viljum að þeir höfði til breiðs hóps og verði hluti af veitingastaðaflóru borgarinnar. Við erum mjög ánægð með að hafa jafn reynslumikla matreiðslumenn og Guðmund Víði og Ómar í fararbroddi.

Við viljum meðal annars endurvekja hádegishlaðborðin vinsælu og einnig hvetja fjölskyldur og vini að hittast í bröns um helgar, sem verður í boði á báðum veitingastöðum,“

segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela í tilkynningu.

Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela

Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela

Fjölbreyttur veitinga- og viðburðarekstur

Veitingarekstur beggja hótela nær einnig til ráðstefna, funda, veislna, erfidrykkja og stærri viðburða. DOM og LAUF er ætlað að þjóna ólíkum hópum og tilefnum yfir daginn, hvort sem um er að ræða viðskiptafundi, samveru fjölskyldna og vinahópa eða stærri samkomur.

Fram undan er jafnframt jólavertíðin og verður að venju boðið upp á jólahlaðborð í hátíðarsal Hilton Reykjavík. Jólahlaðborðið er meðal annars ætlað fyrirtækjum og hópum og mun Stuðlabandið sjá um tónlist og skemmtun á völdum kvöldum.

Íslandshótel er leiðandi félag í íslenskri ferðaþjónustu og rekur 19 hótel með um 2.400 herbergjum víðsvegar um landið undir vörumerkjunum Fosshótel og Hótel Reykjavík, auk Hilton Reykjavík. Kjarnastarfsemi félagsins er hótel- og veitingarekstur og félagið á jafnframt stóran hluta þeirra fasteigna sem hýsa starfsemina.

Myndir: aðsendar

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið