Frétt
Íslandshótel taka við rekstri tveggja stórra hótela

Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura Hotel verða rekin af Íslandshótelum frá og með 1. september.
Óvissa hefur ríkt meðal starfsfólks tveggja stórra hótela í Reykjavík eftir að Íslandshótel tilkynntu um fyrirhugaða yfirtöku síðar á árinu, samkvæmt Vísi.
Um er að ræða hótelin við Suðurlandsbraut og Nauthólsveg, sem hingað til hafa verið rekin af Berjaya Hotels Iceland en verða tekin yfir 1. september. Þrátt fyrir að stjórnendur Íslandshótela segi að allur starfshópurinn verði endurráðinn hafa heimildir fréttastofu bent til þess að sumir starfsmenn hafi fundið fyrir óöryggi eftir fundi um breytingarnar.
Óvissan snýr ekki síst að framtíð nafna hótelanna. Berjaya á vörumerkin Nordica og Natura, en þó eru líkur taldar á að hótelið við Suðurlandsbraut haldi áfram samstarfi við alþjóðlegu Hilton-keðjuna.
Yfirtakan á sér nokkra forsögu. Leigusamningur við fasteignafélagið Reitir var að renna út og þrátt fyrir að Berjaya hefði upphaflega ætlað að nýta forleigurétt sinn var fallið frá þeim áformum. Í kjölfarið náðu Íslandshótel samkomulagi um nýjan 17 ára samning sem tekur gildi haustið 2026.
Samkvæmt upplýsingum frá Reitum verður ráðist í umfangsmiklar endurbætur á fasteignunum, sem eru samtals um 26.500 fermetrar með um 470 herbergjum. Gert er ráð fyrir verulegri tekjuaukningu á fyrstu árum samningsins.
Nánar má lesa um málið á Vísir.
Myndir: aðsendar
-
Markaðurinn6 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Keppni2 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn7 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni5 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt3 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Keppni2 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð



