Starfsmannavelta
Hópuppsagnir hjá Hilton Nordica og Natura
Um þrjú hundruð starfsmönnum Hilton Nordica og Natura-hótelanna verður sagt upp á þriðjudag í næstu viku, samkvæmt umfjöllun Vísis. Uppsagnirnar eru liður í tilfærslu hótelanna frá Iceland Hotel Collection by Berjaya yfir til Íslandshótela.
Sjá einnig: Hilton Nordica og Reykjavík Natura fá nýjan rekstraraðila og andlitslyftingu
Starfsfólk Hilton Nordica var boðað á fund síðdegis í gær þar sem hópuppsögnin var kynnt. Samkvæmt heimildum Vísis ríkti óánægja meðal starfsfólks vegna skamms fyrirvara og óvissu um framhaldið, sérstaklega þar sem sumarið er annasamasti tími hótelanna.
Í fréttinni kemur fram að starfsfólk muni fá send skjöl til rafrænnar undirritunar á þriðjudag. Þá segir að óvissa hafi ríkt lengi um framtíð hótelanna eftir fréttir af yfirtöku Íslandshótela sem fyrst bárust árið 2025.
Stjórnendur Íslandshótela hafa áður sagt að allt starfsfólk verði endurráðið eftir yfirtökuna, en samkvæmt umfjöllun Vísis hefur það ekki verið staðfest beint við starfsfólkið.
Nánar má lesa um málið á visir.is.
„Gerum ekki ráð fyrir öðru en að ráða þetta fólk aftur inn til okkar“
„Við munum að sjálfsögðu koma fram af virðingu við þetta starfsfólk, margt hvert búið að vinna þarna mjög lengi þannig ða öllu þessu fólki verður boðið að koma í samtal við okkur og við gerum ekki ráð fyrir öðru en að ráða þetta fólk aftur inn til okkar,“
segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela í samtali við ruv.is, þar sem hægt er að lesa nánar um málið.
Mynd: úr safni
-
Keppni3 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni3 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt4 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Markaðurinn3 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Markaðurinn4 dagar síðanSecret Garden vörulínan stækkar hjá Drykkur heildsölu




