Frétt
Hilton Nordica og Reykjavík Natura fá nýjan rekstraraðila og andlitslyftingu
Reitir og Íslandshótel hafa í dag undirritað leigusamninga til 17 ára um fasteignirnar að Suðurlandsbraut 2 og Nauthólsvegi 52 sem hýsa hótelin Hilton Reykjavik Nordica og Reykjavík Natura. Um er að ræða sögufræg hótel, sem eru samtals um 26.500 fermetrar að stærð, með um 470 hótelherbergi.
Í tilkynningu kemur fram að Reitir, í samvinnu við Íslandshótel, munu ráðast í endurbætur á hótelunum yfir næstu tvö og hálft ár sem mun auka gæði þeirra og aðdráttarafl. Helstu endurbætur felast meðal annars í því að stór hluti af hótelherbergjum verður endurnýjaður. Framkvæmdakostnaður Reita er áætlaður um 3 ma.kr.
„Við erum virkilega ánægð að fá Íslandshótel sem samstarfsaðila vegna tveggja lykilhótela á höfuðborgarsvæðinu. Fjölmörg tækifæri felast í markvissum endurbótum sem munu skila ávinningi til beggja aðila auk þess að bæta upplifun framtíðargesta hótelanna.“
Sagði Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita í tilkynningu.
Íslandshótel tekur við rekstrinum þann 1. október nk. nýti núverandi leigutaki, Berjaya Hotels Iceland, sér ekki forleigurétt sinn.
Íslandshótel er stærsta hótelkeðja landsins, sem rekur 17 hótel um allt land undir vörumerkjunum Fosshótel og Hótel Reykjavík. Tekjur Íslandshótela árið 2024 námu 16,4 mö.kr. og nam eigið fé félagsins um síðustu áramót 26 mö.kr.
Reitir áætla að árleg aukning tekna og rekstrarhagnaðar (NOI) vegna leigusamninganna sé um 620 m.kr. á fyrstu tveimur og hálfa ári leigutímans en um 720 m.kr. eftir það.
Um Reiti fasteignafélag
Reitir fasteignafélag hf. er íslenskt hlutafélag og skráð í Kauphöll síðan 2015. Samstæða félagsins samanstendur af móðurfélaginu, Reitum fasteignafélagi hf., ásamt dótturfélögum, sem öll eru að fullu í eigu móðurfélagsins. Starfsemi félagsins felst í eignarhaldi, útleigu og umsýslu atvinnuhúsnæðis og er fyrirtækið leiðandi í þeirri starfsemi sem og fasteignaþróun.
Innan eignasafns Reita eru um 480 þúsund fermetrar atvinnuhúsnæðis sem hýsir fjölbreytta atvinnustarfsemi og opinberar stofnanir. Eigendur félagsins eru að stærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir.
Myndir: aðsendar
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanAtli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Frétt3 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt3 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Markaðurinn6 dagar síðanGarri stækkar vöruúrval sitt fyrir veitingageirann
-
Markaðurinn6 dagar síðanÍsey fagnar væntanlegum sólmyrkva með nýju skyrbragði
-
Frétt5 dagar síðanÁttu þessa grillpönnu? Þá skaltu hætta að nota hana strax
-
Frétt2 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum



