Frétt
Erfið tímamót hjá Berjaya en rekstur félagsins heldur áfram
Í kjölfar nýlegrar fjölmiðlaumfjöllunar vill Iceland Hotel Collection by Berjaya koma á framfæri skýringum varðandi breytingar á leigusamningum fasteignanna við Suðurlandsbraut 2 og Nauthólsveg 52 sem nú hýsa Hilton Reykjavik Nordica og Berjaya Reykjavik Natura Hotel.
Fréttatilkynningin í heild sinni:
Rétt er að taka fram að um ræðir samkomulag á milli Reita fasteignafélags og félagsins um lok leigusamninga á tveimur fasteignum, sem frá og með 1. september 2026, verða ekki lengur hluti af leigusamningum Berjaya á Íslandi. Þrátt fyrir eindreginn vilja félagsins til áframhaldandi leigu náðust því miður ekki samningar við Reiti fasteignafélag, um áframhaldandi leigu þessara fasteigna.
Félagið mun eftir sem áður halda áfram óbreyttum rekstri þessara hótela til og með 31. ágúst en þá hætta hótelin Hilton Reykjavík Nordica og Berjaya Reykjavik Natura Hotel rekstri.
Þar sem félagið verður ekki áfram leigutaki að umræddum fasteignum neyðist félagið til að grípa til erfiðra aðgerða og ljúka ráðningarsambandi við starfsfólk á þessum tveimur starfsstöðvum, sem hluti af formlegu ferli sem þarf að eiga sér stað í ljósi þessarar stöðu. Uppsagnirnar eru framkvæmdar í samræmi við ráðgjöf lögfræðinga Berjaya, í nánu samstarfi við trúnaðarmenn stéttarfélaga sem og annarra hagsmunaaðila.
Starfsmannafundir voru haldnir á báðum hótelum í gær og í dag þar sem rætt var við starfsfólk og þeim kynntar fyrirhugaðar uppsagnir og næstu skref. Félagið leggur ríka áherslu á að standa faglega og af ábyrgð að þessu ferli, styðja við starfsfólk og þakkar félagið starfsfólki sínu fyrir framúrskarandi störf, skilning í erfiðum aðstæðum og tryggð í gegnum árin.
Íslandshótel hafa opinberlega gefið út að öllum verði boðið starf og er það von Berjaya að svo verði Þrátt fyrir þessar breytingar er Iceland Hotel Collection by Berjaya áfram eitt stærsta hótelfélag landsins með 11 hótel og um 600 starfsmenn og fjölbreyttan rekstur víðs vegar um landið.
Undir rekstri félagsins verða áfram:
- Iceland Parliament Hotel, Curio Collection by Hilton
- Reykjavik Konsulat Hotel, Curio Collection by Hilton
- Canopy by Hilton Reykjavik City Centre
- Alda Hotel Reykjavik
- Berjaya Reykjavik Marina Hotel, Berjaya Akureyri Hotel, Berjaya Mývatn Hotel, Berjaya Hérað Hotel, Berjaya Höfn Hotel
- Edda Hotel Akureyri, Edda Hotel Egilsstaðir
Iceland Hotel Collection by Berjaya mun áfram leggja áherslu á gæðaþjónustu, sterka alþjóðlega tengingu og öfluga uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu til framtíðar.
-
Keppni4 dagar síðanMyndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
-
Frétt6 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanHákon Bragi seldi hlut sinn í Fæby og tekur við nýju starfi hjá ISS
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanMyndasafn: Glæsilegt sælkerakvöld með Bocuse d’Or kokkum Íslands
-
Markaðurinn1 dagur síðanEvogro ræktunarskápur hámarkar ferskleikann – nýjung hjá BVT
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanAurore: „Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld“
-
Markaðurinn3 dagar síðanViltu öðlast ofurkrafta – Ertu að nýta gervigreindina í daglegu starfi?
-
Markaðurinn2 dagar síðanBrauð mánaðarins með stökkri og fallegri áferð



