Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Fimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu

Birting:

þann

Hermann Þór, Hinrik Carl, Sigurður Daði, Ragnar Wess og Ægir gefa út kennslubók - "Þetta verkefni er búið að taka 3 ár hjá okkur...."

Fimm íslenskir matreiðslumeistarar eru meðal þeirra sem hlotið hafa tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna 2026. Þeir eru tilnefndir í flokki iðn- og verkmenntunar fyrir gerð námsefnisins Matreiðsla, sem ætlað er nemendum í matreiðslu á framhaldsskólastigi.

Höfundar námsefnisins eru matreiðslumeistararnir Hermann Þór Marinósson, Hinrik Carl Ellertsson, Ragnar Wessman, Sigurður Daði Friðriksson og Ægir Friðriksson.

Tilnefningin er viðurkenning fyrir framúrskarandi framlag þeirra til iðn- og verkmenntunar með gerð heildstæðs og vandaðs námsefnis fyrir verðandi matreiðslumenn.

Sjá einnig: Fyrsta heildstæða kennsluefnið í matreiðslu gefið út eftir 70 ára kennslusögu – Myndir frá útgáfuteitinu

Námsefnið er á rafbókarformi og hefur reynst afar vel við kennslu í matreiðslu. Með útgáfunni hafa höfundarnir lagt sitt af mörkum til að efla fagmenntun í matreiðslu og bæta aðgengi nemenda að námsefni sem nýtist þeim í námi og framtíðarstarfi.

Hermann Þór, Hinrik Carl, Sigurður Daði, Ragnar Wess og Ægir gefa út kennslubók - "Þetta verkefni er búið að taka 3 ár hjá okkur...."

Þrjú verkefni tilnefnd í flokki iðn- og verkmenntunar

Auk höfundanna fimm eru tvö önnur verkefni tilnefnd í flokki iðn- og verkmenntunar.

Menntaskólinn á Ísafirði hlýtur tilnefningu fyrir verkefnið Tímatökuhúsið, þar sem nemendur komu að hönnun og smíði húss fyrir skíðafélagið. Húsið var síðar flutt á skíðasvæðið í Tungudal til notkunar við tímatöku í alpagreinum.

Verkmenntaskólinn á Akureyri er tilnefndur fyrir verkefnið Sjálfbær kennslustofa. Þar hefur verið komið upp sólarorkuveri og aðstöðu fyrir fjölbreytt verkefni sem tengjast sjálfbærni, orkunýtingu og umhverfismennt.

Verðlaunin afhent á Bessastöðum í nóvember

Fyrsta heildstæða kennsluefnið í matreiðslu gefið út eftir 70 ára kennslusögu – Myndir frá útgáfuteitinu

Höfundar námsefnisins Matreiðsla, Hermann Þór Marinósson, Hinrik Carl Ellertsson, Ragnar Wessman og Ægir Friðriksson. Á myndina vantar fimmta höfundinn, Sigurð Daða Friðriksson.

Íslensku menntaverðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum þriðjudaginn 10. nóvember næstkomandi.

Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum fyrir framúrskarandi skólastarf, kennslu, þróunarverkefni og iðn- og verkmenntun. Auk þess verða sérstök hvatningarverðlaun veitt án tilnefninga, en þau hafa meðal annars fallið í skaut frumkvöðlum og brautryðjendum í menntamálum.

Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi og stuðla að auknum áhuga á þróun og umbótum í menntamálum.

Tilnefningar til verðlaunanna voru kynntar 5. október, á alþjóðlegum degi kennara.

Tilnefning matreiðslumeistaranna fimm vekur sérstaka athygli innan matreiðslugeirans enda er vandað námsefni á íslensku mikilvægur þáttur í menntun nýrra fagmanna í greininni.

Myndir: aðsendar

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið