Viðtöl, örfréttir & frumraun
Aurore: „Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld“

Aurore Pelier Cady og vínþjónninn Evan Leigh Reynolds stóðu saman að Dinner in Loire á Matur & Drykk.
Franskur matur og vín frá Loire-dalnum voru í aðalhlutverki á Dinner in Loire, sérstökum pop-up viðburði sem fram fór á veitingastaðnum Matur & Drykk á Granda miðvikudaginn 23. september síðastliðinn.
Aurore Pelier Cady, pastry chef og eigandi Sweet Aurora Reykjavík, og vínþjónninn Evan Leigh Reynolds stóðu að kvöldinu. Aurore matreiddi rétti sem sóttu innblástur í heimahaga hennar og æsku í Frakklandi en Evan valdi vín frá Loire-dalnum með réttunum.

Matseðill kvöldsins á Dinner in Loire, þar sem réttir frá Loire-dalnum voru paraðir við sérstaklega valin vín frá héraðinu.
Alls sóttu 15 gestir kvöldið og segir Aurore að fámennur hópurinn hafi skapað notalega og persónulega stemningu.
„Kvöldið gekk mjög vel. Við Evan vorum bara tvö og sáum um allt, eldamennskuna, framreiðsluna og uppvaskið. Við vorum því í mörgum hlutverkum,“
segir Aurore létt í bragði í samtali við veitingageirinn.is
Vínin komu gestum á óvart
Að sögn Aurore voru viðbrögð gesta mjög góð og vakti vínval Evans sérstaka athygli. Vín frá Loire-dalnum séu ekki algeng hér á landi og því hafi margir gestanna fengið tækifæri til að kynnast einhverju nýju.
„Gestirnir voru mjög ánægðir og komu vínin mörgum á óvart. Vín frá Loire-dalnum eru fremur sjaldséð á Íslandi og því var gaman að geta kynnt þau fyrir gestunum,“
segir Aurore.
Hún segir að tveir réttir hafi vakið sérstaklega mikla lukku, fylltir sveppir og eftirrétturinn crémet d’Anjou.
Minningar frá æsku rifjuðust upp
Kvöldið hafði persónulega þýðingu fyrir Aurore enda sótti matseðillinn innblástur í æsku hennar og heimahaga. Hún segir að það hafi vakið upp sterkar minningar að elda þessa rétti á ný.
„Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld. Það var langt síðan ég hafði eldað mat af þessu tagi.
Réttirnir vöktu upp minningar frá æsku, þegar ég eldaði með fjölskyldunni minni eða fór út að borða á veitingastöðum í Angers.
Það gladdi mig mikið að geta deilt þessu með gestunum,“
segir Aurore.
Uppáhald systranna frá barnæsku
Eftirrétturinn crémet d’Anjou stendur Aurore sérstaklega nærri. Hún segir að rétturinn hafi verið í miklu uppáhaldi hjá henni og systur hennar þegar þær voru börn og sé það raunar enn í dag.
Crémet d’Anjou er létt og loftkennd mousse sem gerð er meðal annars úr marengs og rjóma. Á Dinner in Loire var eftirrétturinn borinn fram með súrri hindberjasósu sem gaf mótvægi við rjómakennda áferðina.
„Þetta var algjört uppáhald hjá okkur systrum þegar við vorum litlar og ég held að það sé það enn í dag. Þetta er mjög sérstök uppskrift og það tekur heila nótt að útbúa réttinn með réttri aðferð.“
Gestir spurðu strax um næsta kvöld
Dinner in Loire virðist ekki verða síðasta verkefnið af þessu tagi hjá Aurore. Hún segir áhuga á að halda fleiri matarviðburði og þegar séu hugmyndir farnar að gerjast um næsta verkefni.
„Já, svo sannarlega. Við höfum þegar rætt við vin okkar um að gera eitthvað í þessum dúr á öðrum veitingastað í vetur,“
segir Aurore.
Áhuginn hafi einnig verið greinilegur meðal gestanna.
„Þegar gestirnir voru að halda heim á leið voru þeir strax farnir að spyrja hvenær næsta kvöld yrði.“
Myndir: aðsendar
-
Frétt1 dagur síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanBoðið í ferð fyrir fagfólk í veitingageiranum
-
Keppni5 dagar síðanNegroni hlaupið lífgar upp á Austurvöll
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Markaðurinn6 dagar síðanNathan kynnir nýja virkni sem flýtir fyrir daglegum innkaupum
-
Keppni6 dagar síðanManuel Schembri vann brons fyrir Íslands hönd










