Viðtöl, örfréttir & frumraun
Sweet Aurora fagnar fjögurra ára afmæli með afmælisveislu

Kökuverslunin Sweet Aurora er staðsett í kjallarahúsnæði við Bergstaðastræti 14 í Reykjavík
Mynd: Facebook / Sweet Aurora Reykjavik
Sælkerabakaríið Sweet Aurora Reykjavík fagnar fjögurra ára afmæli sínu með afmælisveislu föstudaginn 17. júlí frá klukkan 17:00 til 20:00 í húsakynnum sínum við Bergstaðastræti 14 í Reykjavík.
Afmælisveislan er opin öllum og hefur verið auglýst sem notaleg samvera þar sem gestum býðst að fagna þessum tímamótum með starfsfólki bakarísins.
Í kynningu á viðburðinum kemur fram að síðustu fjögur ár hafi einkennst af ljúffengu bakkelsi, góðum stundum og öflugum stuðningi viðskiptavina. Eigendur segja að þrátt fyrir áskoranir í rekstrarumhverfinu sé fyrirtækið enn starfandi og vilji fagna þessum áfanga með gestum sínum.
Boðið verður upp á léttar veitingar, þar á meðal focaccia-brauð og sætt bakkelsi, auk tónlistar frá plötusnúðnum DJ Elsa BJE. Þá verður einnig efnt til smárra gjafaleikja fyrir gesti.
Afmælisveislan hefst klukkan 17:00 og stendur til klukkan 20:00.
-
Keppni7 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn4 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar4 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Frétt3 dagar síðanKornax innkallar Kanilsnúðaköku
-
Markaðurinn2 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“



