Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Ísak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð

Birting:

þann

Kokkur ársins 2025

Ísak Aron Jóhannsson
Mynd: Mummi Lú

Ísak Aron Jóhannsson, fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins og kokkur ársins 2026, hefur sent frá sér nýja matreiðslubók sem ber heitið Bragð.

Hugmyndin að bókinni hefur lengi verið Ísaki hugleikin en í henni safnar hann saman uppskriftum sem hann hefur þróað í gegnum árin, að því er fram kemur á mbl.is.  Auk uppskrifta leggur hann áherslu á að miðla þekkingu, ráðum og aðferðum sem geti hjálpað fólki að skilja betur það sem gerist við matreiðsluna.

Íslenskt hráefni í forgrunni

Bókin er ætluð jafnt byrjendum sem reynslumeira fólki í eldhúsinu og eru uppskriftirnar af mismunandi erfiðleikastigi. Þar má einnig finna ýmis ráð úr atvinnueldhúsinu.

Ísak segir við mbl.is að íslenskt hráefni sé rauður þráður bókarinnar. Þar megi finna áhrif frá æsku sinni á Suðureyri, störfum hans í atvinnueldhúsum hér heima og erlendis, auk reynslu hans úr keppnismatreiðslu.

Reynsla úr Michelin-eldhúsum og keppnismatreiðslu

Ísak starfaði meðal annars á Michelin-stjörnuveitingastöðunum Hotel Helvie í Suður-Frakklandi og Texture í London.

Hann gekk til liðs við íslenska kokkalandsliðið árið 2019 og tók síðar við sem fyrirliði liðsins. Kokkalandsliðið hafnaði í þriðja sæti á Ólympíuleikum matreiðslumeistara árið 2024.

Heimsmeistaramótið fram undan

Ísak hefur í nógu að snúast þessa dagana enda er hann fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins sem undirbýr sig nú fyrir heimsmeistaramótið í Lúxemborg í lok nóvember.

Meðal rétta í Bragði eru lamba-prime og vestfirsk hörpuskel, grillað brokkolí með eldpiparsalati og ostakremi, eftirréttur úr rabarbara, mjólkursúkkulaði og myntu, auk brasseraðs lambaframparts sem Ísak segir einn þeirra rétta sem fólk ætti sérstaklega að prófa.

Nánar er fjallað um Ísak Aron, feril hans og tilurð bókarinnar Bragð á mbl.is.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið