Vín, drykkir og keppni
NÆS lokar sumrinu með fullbókuðu kvöldi í London
Veitingastaðurinn NÆS í Vestmannaeyjum heldur til London um helgina þar sem teymið verður með pop-up á veitingastaðnum Mareida á morgun, sunnudaginn 20. september. Mikill áhugi hefur verið á viðburðinum og er nú fullbókað.
Pop-upið kemur í beinu framhaldi af sumrinu hjá NÆS, sem hefur nú lokað fyrir veturinn eftir gott og annasamt sumar í Vestmannaeyjum. Teymið heldur þó beint áfram til London þar sem markmiðið er að taka með sér smá hluta af Eyjum og kynna þá matargerð og nálgun sem hefur einkennt NÆS.
„NÆS er mjög tengt Vestmannaeyjum, hráefninu og umhverfinu sem við höfum í kringum okkur. Það er ótrúlega gaman að fá tækifæri til að taka þetta með okkur út og sýna okkar nálgun á íslenska og vestmanneyska matargerð í London.
Viðtökurnar hafa verið frábærar og það er sérstaklega gaman að fara út vitandi að kvöldið er fullbókað,“
segir Gísli Matthías Auðunsson, einn eigenda NÆS.
Kvöldið er samstarf NÆS og Mareida, veitingastaðar í SOHO í London sem fókusar á matargerð Chile. Teymin tvö hafa sett saman sérstakan matseðil þar sem matargerð NÆS mætir bragðheimi Mareida.
Frá NÆS verða meðal annars réttir með fiski, þorskvængjum og lambasíðu ásamt skyri, Rabbabara, íslenskum jurtum og öðrum hráefnum sem tengjast matargerð staðarins og Vestmannaeyjum.
Ferðin til London verður þannig eins konar lokapunktur á sumarið hjá NÆS áður en staðurinn fer í vetrarfrí.
„Við erum ótrúlega þakklát öllum sem komu til okkar í sumar og ekki síst frábæra teyminu okkar. Það er alltaf sérstakt að reka veitingastað í Vestmannaeyjum yfir sumarið og við erum strax farin að hlakka til að opna aftur næsta sumar.
En fyrst ætlum við að taka NÆS aðeins út fyrir Eyjar og enda sumarið saman í London.“
Segir Gísli að lokum.
Myndir: Karl Petersson
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanEfnisstraumar á veitingageirinn.is
-
Keppni4 dagar síðanFremstu vínþjónar Norðurlandanna keppa í Reykjavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanSöfnuðu rúmlega þremur milljónum fyrir fjölskyldur í Nepal
-
Markaðurinn5 dagar síðanFastus auglýsir eftir söluráðgjafa stóreldhúsa
-
Markaðurinn5 dagar síðanOlifa og Danól hefja samstarf um ítölsk gæðahráefni fyrir fageldhús
-
Markaðurinn4 dagar síðanBetri ráðningar með minni fyrirhöfn
-
Markaðurinn1 dagur síðanSilkimjúk humarbisque fyrir sælkera
-
Markaðurinn3 dagar síðanWolt og European Transport Safety Council í samstarf um öruggari götur








