Keppni
Manuel Schembri og Oddný Ingólfsdóttir keppa fyrir Íslands hönd

Stjórn Vínþjónasamtaka Íslands. Frá vinstri: Peter Hansen, Alba E. H. Hough og Þorleifur „Tolli“ Sigurbjörnsson.
Einn stærsti viðburður norræna vínþjónaheimsins fer fram á Íslandi á morgun, sunnudaginn 20. september, þegar keppnin Besti vínþjónn Norðurlandanna 2026 verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica.
Sjá einnig: Fremstu vínþjónar Norðurlandanna keppa í Reykjavík
Vínsýning opin almenningi
Samhliða keppninni verður haldin vínsýning þar sem gestir geta notið sýningarinnar og fylgst með spennandi úrslitum á sviði. Þrír stigahæstu keppendurnir leysa þar krefjandi verkefni áður en Besti vínþjónn Norðurlandanna 2026 verður krýndur.
Vínþjónasamtök Íslands halda keppnina í ár og bjóða hingað til lands tíu af færustu vínþjónum Norðurlandanna, tvo frá Íslandi, Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð.
Það er stór viðburður fyrir íslenska vínþjóna og veitingageirann í heild að fá þessa virtu keppni til landsins. Keppnin gefur vínáhugafólki og öðrum gestum einstakt tækifæri til að fylgjast með norrænni vínþjónustu og gestrisni á hæsta stigi.
Tveir öflugir fulltrúar Íslands
Ísland teflir fram tveimur sterkum og reynslumiklum keppendum, þeim Oddnýju Ingólfsdóttur og Manuel Schembri. Bæði hafa þau mikla reynslu af vínþjónastarfi og alþjóðlegum keppnum á hæsta stigi.
Oddný Ingólfsdóttir
Íslandsmeistari vínþjóna 2026
Oddný keppti fyrir Íslands hönd í ASI-keppninni um besta vínþjón Evrópu, Afríku og Mið-Austurlanda í Belgrad árið 2024 og hefur einnig tekið þátt í Norðurlandamóti vínþjóna.
Hún starfar sem veitingastjóri og yfirvínþjónn á Sumac, er með sveinspróf í framreiðslu og WSET Level 3-gráðu í vínfræðum. Þá kennir hún vínfræði við Hótel- og matvælaskólann í MK og hefur komið að þjálfun íslenskra keppenda fyrir alþjóðlegar fagkeppnir.
Manuel Schembri
14. sæti á heimsmeistaramóti 2023
Manuel varð Íslandsmeistari árið 2021 og hafnaði sama ár í 20. sæti í keppninni um besta vínþjón Evrópu og Afríku á Kýpur.
Á heimsmeistaramóti vínþjóna í París árið 2023 komst hann í 17 manna undanúrslit af 70 keppendum og hafnaði að lokum í 14. sæti. Manuel starfar sem Food & Beverage Manager hjá ÓX og Sel by ÓX. Norðurlandamótið í Reykjavík verður síðasta keppni hans í bili.
Meira en vínþekking ræður úrslitum
Heimur vínþjónsins er bæði víðamikill og flókinn. Starfið snýst ekki aðeins um vín heldur þurfa keppendur einnig að búa yfir þekkingu á sterkum drykkjum, bjór, kaffi, tei, öðrum drykkjum og matarmenningu víða að úr heiminum.
Í keppninni reynir jafnframt á nákvæmni, yfirvegun og framúrskarandi þjónustuhæfni við krefjandi aðstæður. Þrír stigahæstu keppendurnir komast áfram í úrslit þar sem þeir leysa fjölbreytt verkefni á sviði fyrir framan dómara og áhorfendur.
Fagfólk, vínáhugafólk og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta, njóta vínsýningarinnar og styðja Oddnýju og Manuel þegar þau takast á við fremstu vínþjóna Norðurlandanna.
Keppnin Besti vínþjónn Norðurlandanna 2026 fer fram á Hilton Reykjavík Nordica sunnudaginn 20. september frá kl. 14 til 18 og verður vínsýning opin almenningi samhliða keppninni.
Myndir: Vínþjónasamtök Íslands
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanNÆS lokar sumrinu með fullbókuðu kvöldi í London
-
Keppni6 dagar síðanFremstu vínþjónar Norðurlandanna keppa í Reykjavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanSöfnuðu rúmlega þremur milljónum fyrir fjölskyldur í Nepal
-
Frétt4 dagar síðanSkreið frá Íslandi í sviðsljósinu í Tórínó
-
Markaðurinn4 dagar síðanSilkimjúk humarbisque fyrir sælkera
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanBragð af Loire-dalnum á Matur & Drykk
-
Frétt2 dagar síðanRetreat við Bláa Lónið eina íslenska hótelið með tvo Michelin-lykla
-
Keppni5 dagar síðanAlexander Jósef stóð uppi sem sigurvegari með „Chris Pine“





