Vín, drykkir og keppni
Kynning á Antonius, úrvalskavíar sem hefur heillað Michelin-kokka
Föstudaginn 3. júlí klukkan 18:30 stendur Kampavínsfjelagið fyrir glæsilegu kampavíns- og kavíarsmakki á Konsúlat Wine Room þar sem gestum gefst tækifæri til að njóta úrvals kampavína og kavíars í góðum félagsskap áður en sumarfríin taka við.
Viðburðurinn hefst með fordrykk klukkan 18:30 og stendur yfir í rúmar tvær klukkustundir. Skipuleggjendur hvetja gesti til að mæta tímanlega svo þeir geti notið fordrykksins frá upphafi.
Kvöldið hefst á Cipriani Bellini og því næst verður boðið upp á Pierre Gimonnet Cuis Premier Cru parað með Antonius Siberian kavíar. Þá taka við Philipponnat Rosé og Philipponnat Blanc de Noirs 2019, sem verður parað með Antonius Oscietra kavíar.
Antonius-kavíar hefur meðal annars verið kynntur í samstarfi við Michelin-kokka í Evrópu og nýtur vaxandi vinsælda meðal fagfólks í veitingageiranum.
Að smakkinu loknu geta gestir haldið kvöldinu áfram á Konsúlati, en sérstakur afsláttur verður í boði af kvöldverðarseðli veitingastaðarins. Einnig verður boðið upp á „tappagjald“ af eðalvínum fyrir þá sem vilja njóta kvöldsins lengur.
Skipuleggjendur minna jafnframt á að skilja bílinn eftir heima, enda sé kvöldið ætlað til að njóta kampavínsins til fulls.
Bókanir fara fram í gegnum Dineout.
Mynd; kampavinsfjelagid
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn3 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn4 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Keppni2 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Keppni4 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau




