Markaðurinn
Fljótlegur og bragðmikill taco-réttur fyrir fjölskylduna
Uppskrift:
1 pakki Meksikanske gryte frá Toro
500 g nautahakk eða annað hakk
Litlar vefjur 17-20 stk
kóríander og sprettur – má sleppa
rifinn ostur
sósan:
sýrður rjómi
salsa sósa
Aðferð:
Þú byrjar á því að steikja hakkið og blandar svo grýtu pakkanum frá Toro út í hakkið ásamt vatni skv leiðbeiningum. Blandan þarf að malla og taka sig við vægan hita í um 20 mínútur. Á meðan er tilvalið að ná í vefjurnar. Þú getur annað hvort notað litlar vefjur eða skorið 4 vefjur út úr einni stórri (stærsta gerðin).
Þegar taco blandan er tilbúin er hafist handa við að útbúa hringinn. Ef þú ert að gera hringinn á ofnplötu er sniðugt að setja litla sósuskál eins og á myndinni í miðjuna og raða svo taco fylltum vefjum í kring um skálina, þá færðu fullkominn hring.
Að lokum er ostur settur yfir vefjurnar og þetta hitað í um 5-10 mínútur við 180 gráður svo osturinn bráðni.
Á meðan er sósan útbúin en hún er gerð með því að blanda saman til helminga sýrðum rjóma og salsa sósu.
Þegar rétturinn er borinn fram er gaman að setja eitthvað grænt með, kóríander, sprettur eða klettasalat en því má einnig sleppa.
Höfundur: Helga Magga / Lindsay
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanNÆS lokar sumrinu með fullbókuðu kvöldi í London
-
Keppni5 dagar síðanManuel Schembri og Oddný Ingólfsdóttir keppa fyrir Íslands hönd
-
Markaðurinn5 dagar síðanSilkimjúk humarbisque fyrir sælkera
-
Frétt5 dagar síðanSkreið frá Íslandi í sviðsljósinu í Tórínó
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanBragð af Loire-dalnum á Matur & Drykk
-
Frétt4 dagar síðanRetreat við Bláa Lónið eina íslenska hótelið með tvo Michelin-lykla
-
Keppni6 dagar síðanAlexander Jósef stóð uppi sem sigurvegari með „Chris Pine“
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanBoðið í ferð fyrir fagfólk í veitingageiranum






