Markaðurinn
Ostunnendur fá nýtt uppáhald með piparkrydduðum Dala Auði
Ostaunnendur geta nú heldur betur glaðst því á næstu dögum kemur á markað nýr, ljúffengur og bragðmikill Dalaostur með piparkornum sem lofar að krydda ostaborðið með stæl.
Dala Auður með piparkornum sameinar það besta úr tveimur heimum, silkimjúka og rjómakennda áferð hvítmygluostins og kraftmikinn, létt stingandi karakter heilla piparkorna sem láta ljós sitt skína í hverjum bita.
Dala Auður með piparkornum hentar jafnt á ostabakkann, með góðu súrdeigsbrauði og sætum sultum, sem og bræddur yfir heitan rétt og hamborgara fyrir þau sem vilja prófa eitthvað nýtt.
Osturinn smellpassar líka með ferskum ávöxtum eða einfaldlega einn og sér – því stundum þarf ekkert meira.
Nýi osturinn er á leið í verslanir á næstu dögum og verður í boði í takmarkaðan tím en miðað við fyrstu viðbrögð gæti hann horfið hratt úr hillunum.
-
Markaðurinn5 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Keppni6 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Markaðurinn5 dagar síðanNýjar íslenskar kartöflur vekja alltaf eftirvæntingu
-
Markaðurinn5 dagar síðanNý uppskera af íslensku spergilkáli komin í verslanir
-
Frétt4 dagar síðanÁkærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað
-
Frétt3 dagar síðanGordon Ramsay, Marco Pierre White og Heston Blumenthal sameinast á ný í nýrri BBC þáttaröð
-
Frétt1 dagur síðanEndurbyggðu veitingastaðinn frá grunni eftir brunann



