Markaðurinn
Garri hlýtur hæstu einkunn í BRCGS gæðavottun
Garri hefur hlotið BRCGS Storage and Distribution gæðavottun með einkunnina AA, sem er hæsta mögulega einkunn í tilkynntu úttektarferli.
Vottunin staðfestir að starfsemi Garra uppfyllir strangar alþjóðlegar kröfur um matvælaöryggi, rekjanleika, hreinlæti og faglega stjórnun í allri meðhöndlun, geymslu og dreifingu vöru.
Vottunin styrkir stöðu Garra sem trausts samstarfsaðila á íslenskum markaði og endurspeglar metnað fyrirtækisins til að viðhalda framúrskarandi gæðastjórnun í allri starfsemi.
„Þetta er mikilvægur áfangi fyrir okkur. Viðurkenningin staðfestir að við höfum byggt upp öfluga ferla og vinnum stöðugt að því að tryggja gæði og öryggi í allri starfsemi okkar.
Við erum þakklát fyrir frábært starfsfólk og samstarfsaðila sem gera okkur kleift að viðhalda hæstu stöðlum í rekstri. Vottunin hvetur okkur til að halda áfram að gera vel og þróa og bæta þjónustu Garra enn frekar.“
Segir Finnur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Garra.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÍslenskur matreiðslumeistari leiðir Chefs Without Borders
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanGordon Ramsay undirbýr nýjan stað í hjarta London
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanHópuppsagnir hjá Hilton Nordica og Natura
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMichelin hættir með grænu stjörnuna
-
Frétt5 dagar síðanMatvælastofnun varar við neyslu á frosnum nautamaga
-
Frétt2 dagar síðanCarlo Petrini er látinn, 76 ára að aldri
-
Markaðurinn5 dagar síðanSH-41 handsápa fyrir matvælaiðnað nú Svansvottuð
-
Markaðurinn4 dagar síðanFosshótel Jökulsárlón leitar að kokki og aðstoðarfólki í eldhús




