Frétt
Gordon Ramsay, Marco Pierre White og Heston Blumenthal sameinast á ný í nýrri BBC þáttaröð
BBC hefur tilkynnt um nýja þriggja þátta heimildaröð sem ber heitið The Rise of the Rockstar Chef, þar sem þrír áhrifamestu matreiðslumenn Bretlands, Marco Pierre White, Gordon Ramsay og Heston Blumenthal, koma saman á ný í fyrsta sinn í áratugi.
Þáttaröðin rekur vegferð þeirra á tíunda áratugnum og fyrstu árum þessarar aldar, þegar þeir þóttu gjörbreyta breskri veitingamenningu með metnaði, nýsköpun og harðri samkeppni. Í þáttunum verður rakin saga þess hvernig þeir áttu stóran þátt í að koma breskri matargerð á heimskortið og höfðu áhrif á kynslóð matreiðslumanna um allan heim.
Í þáttunum koma þeir sjálfir fram ásamt matargagnrýnendum, veitingamönnum og fyrrverandi samstarfsfólki sem lýsir átökum, deilum og samkeppni sem einkenndi þetta tímabil. Sögunni lýkur síðan með sérstökum endurfundum þeirra þriggja fyrir framan myndavélarnar þar sem þeir rifja upp eftirminnileg augnablik og velta fyrir sér arfleifð þess tímabils sem breytti breskum veitingarekstri. Að sögn BBC er þetta í fyrsta sinn í áratugi sem þeir koma saman í slíku verkefni.
Catherine Catton, yfirmaður þáttagerðar hjá BBC, segir að fyrir áratugum hafi Marco Pierre White, Gordon Ramsay og Heston Blumenthal „breyttu leikreglum í breskri fínni matargerð“ og breytt veitingastaðamenninguna til frambúðar. Hún segist ánægð með að þeir sameinist á ný og segi sögu harðrar samkeppni, óbilandi metnaðar og litríkra uppátækja sem hafi mótað heila kynslóð.
Þáttaröðin verður sýnd á BBC One og streymisveitunni BBC iPlayer. Framleiðandi er Studio Ramsay Global og verður þáttaröðin einnig dreift á alþjóðamarkaði af Fox Entertainment Global.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn3 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn3 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn3 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Markaðurinn2 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn5 dagar síðanLíður að jólum




